Mannlíf
18.11
Egill Páll Egilsson
Guðrún Dís Emilsdóttir eða Gunna Dís eins og hún er oftast nær kölluð býr á Húsavík en hún er gift Kristjáni Þór Magnússyni sveitarstjóra Norðurþings. Þau eiga þrjú börn, Aðalheiði Helgu 12 ára, Magnús Hlíðar 7 ára og Blædísi Borg 4ra ára.
Gunnu Dís þarf vart að kynna en hún hefur stýrt vinsælum útvarps og sjónvarpsþáttum um árabil og í seinni tíð er erfitt að hugsa um Eurovisjon sönglagakeppnina án þess að muna eftir Gunnu Dís enda hefur hún með sínum heillandi persónuleika verið einn allra besti Eurovisjon-kynnir sem Íslendingar hafa alið af sér. Í dag starfar hún á skrifstofu Sjóvá á Húsavík en þar hefur aldrei verið skemmtilegra að huga að tryggingum en einmitt nú. Gunna Dís er frá Ytri-Hlíð í Vopnafirði þar sem hún bjó ásamt foreldrum sínum, þremur bræðrum, föðurbróður, ömmu og afa en í dag er hún Norðlendingur vikunnar.
Lesa meira
Mannlíf
16.11
Egill Páll Egilsson
Júlía Margrét Birgisdóttir er einstæð þriggja barna móðir á Húsavík sem nýlega stofnaði Facebook síðu fyrir sjónrænt skipulag sem hefur sprungið út og telur í dag um 4500 fylgjendur. Júlía á tvo syni og eina dóttur en synir hennar eru báðir geindir með einhverfu. Blaðamaður Vikublaðsins ræddi við hana á dögunum um áfallið við að komast að því að drengirnir væru með einhverfu og verkefni hennar að temja þeim sjálfstæði í daglegum athöfnum.
Júlíu er ágætlega lýst sem hlýrri og líflegri ungri konu sem er svolítið eins fiðrildi með sitt leikandi augnaráð, litríka persónuleika og bros sem minnir á sumarið. Hún starfar á leikskólanum Grænuvöllum á Húsavík og er í sérkennsluteymi leikskólans. Reynsla hennar og þekking á sjónrænu skipulagi nýtist henni afar vel í starfinu og nú eru um 4500 landsmenn sem nota ráð hennar á Facebook-síðunni sem hún stofnaði í fyrstu bylgju Kófsins.
„Ég var að „trilla“ í leikskólanum. Ég mátti ekki fara inn á deildir og sá um að labba með matarvagna að deildum, sótthreinsa alla snertifleti og sjá til þess að duglega starfsfólkið fengi kaffisopa. Ef eitthvað vantaði þá redduðu trillur því. Inn á milli var ég með aðstöðu í salnum til að sinna verkefnum tengd jákvæðum aga og margt fleira. Einn daginn var ég að gera hugmynd að sjónrænu skipulagi og fannst það geta hjálpað mörgum og byrjaði á því að setja skipulagið inn á like-síðu leikskólans,“ útskýrir Júlía og bætir við að hún hafi strax fundið fyrir miklu þakklæti frá foreldrum.
Lesa meira
Mannlíf
07.11
Magna Ásgeirsson þarf vart að kynna en hann hefur verið einn af okkar fremstu söngvurum um árabil. Hann sló í gegn sem söngvari í Á móti sól, vakti heimsathygli fyrir þátttöku sína í Rock Star Supernova fyrr á þessari öld og hefur oft verið nærri því að komast í Eurovision fyrir hönd okkar Íslendinga. Magni býr og starfar á Akureyri þar sem hann unir sér vel og rekur hér tónlistar skóla þar sem hann sinnir einnig kennslu. Ef ástandið væri eðlilegt væri Magni að spila á tónleikum flestar helgar en þar sem árið er frekar óeðlilegt hefur minna verið um spilamennsku í ár. Magni er Norðlendingur vikunnar og við skulum forvitnast frekar um söngvarann.
Lesa meira
Mannlíf
31.10
Egill Páll Egilsson
Í fréttinni er komið inn á málefni Kísiliðjunnar í Mývatnssveit en starfsemi hennar lagðist af árið 2004 eftir að hafa framleitt kísilgúr frá árinu 1967. Einnig er komið inn á virkjunarmál í Þingeyjarsýslu en saga stóriðju og virkjana í Þingeyjarsýslu er orðin löng og er enn verið að rita miðað við nýjustu fréttir um frekari uppbyggingu á Bakka við Húsavík.
Lesa meira
Mannlíf
31.10
Sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir er Norðlendingur vikunnar en hún var í haust fastráðin sóknarprestur í Húsavíkur-prestakalli en hafði þá gegnt embættinu í afleysingum í eitt ár. Hún er fædd 14. desember 1977 og ólst upp í Lönguhlíð í Hörgárdal. Sr. Sólveig Halla lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1997 og mag.theol. prófi frá guðfræðideild Háskóla Íslands 2004 og hóf störf hjá Akureyrarkirkju um sumarið sama ár þar sem hún sinnti æskulýðsmálum. Hún var svo vígð sem safnaðar- og skólaprestur við Akureyrarkirkju hinn 18. september 2005 og sagði því starfi svo lausu fimm árum síðar. Þá flutti hún ásamt eiginmanni sínum, Sigurði Páli Tryggvasyni, og nýfæddri dóttur, að Þverá í Reykjahverfi Þingeyjarsýslu þar sem þau hófu fjárbúskap. Sólveig Halla segist ekki hafa mikið svigrúm í dag fyrir sérstök áhugamál vegna anna en segist hina fullkomnu helgi vera samvera með fólkinu sínu í sumarhúsi fjölskyldunar. „Utan vinnu er best í heimi að njóta samverunnar með fjölskyldu, stórfjölskyldu og vinum, lesa góðar bækur, skáldsögur eða um andleg/trúarleg málefni eða tengt fjölskyldufræðum. Góður göngutúr er líka frábær andleg hleðsla en telst tæplega áhugamál....
Lesa meira
Mannlíf
29.10
Vikublaðið kemur út í dag og er farið um víðan völl í blaði vikunnar.
Lesa meira