Fréttir

Hollvinasamtök SAk Kristnesspítali fær 23 ný rúm

Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri hafa gefið alls 23 ný fullkomin rúm sem afhent verða Kristnesspítala á næstunni.  Jóhannes Bjarnason formaður Hollvinasamtakanna segir að þau hafi kostað um 14 milljónir króna en mikil og brýn þörf hafi verið á að skipta út eldri rúmum á spítalanum og taka í notkun ný og betri í þeirra stað.

Lesa meira

Alþjóðastofa sem sérstök eining verður lögð niður

Alþjóðastofa sem hefur verið starfandi á Akureyri frá upphafi ársins 2002 verður lögð niður sem sértök eining í stjórnkerfi Akureyrarbæjar.  Þetta er tillaga velferðarráðs og hefur meirihluti bæjarráðs tekið undir hana. Með aukinni upplýsingatækni hafa aðrar stofnanir að einhverju leyti tekið við hlutverki Alþjóðastofu. Sú þjónusta sem út af stendur fellur vel að verkefnum annarra stofnana bæjarins

Lesa meira

Sjúkrahúsið á Akureyri fær afar jákvæðar umsagnir í árlegri gæðaúttekt

„Lítum á allar athugasemdir sem tækifæri til að verða betri,“ segir Hannes Bjarnason, gæðastjóri SAk

Lesa meira

Rífandi stemning þegar Ísland tryggði sig í milliriðil HM

Myndaveisla í boði Jóns Forbergs

Lesa meira

Bíddu bara í Hofi 11 febrúar

Gaflaraleikhúsið kemur nú til Akureyrar með metsölusýninguna Bíddu Bara sem hefur nú verið sýnd yfir 60 sinnum fyrir fullu húsi í Hafnarfirði. Sýningin,sem er alger hlátursprengja, er eftir stórstjörnurnar Björk Jakobsdóttur, Sölku Sól Eyfeld og Selmu Björnsdóttur. Gagnrýnandi RÚV kallaði sýninguna óvæntasta gleðigjafa  ársins og án efa fyndnustu sýninguna.   

Lesa meira

Gautaborg við erum á leiðinni!!!

Halldór Jóhann Sigfússon fyrrum leikmaður KA núverandi handboltaþjálfari hjá danska úrvalsdeildarliðinu TTH Holstebro sem í sumar tekur við liði Nordsjælland skrifar um HM í handbolta fyrir lesendur Vikublaðsins.

Lesa meira

FVSA - Starfsdagur trúnaðarmanna

Starfsdagur trúnaðarmanna var haldinn á dögunum eftir þriggja ára hlé. Starfsdagurinn er partur af endurmenntun trúnaðarmanna þar sem lögð er áhersla á fræðslu í bland við sjálfseflingu einstaklingsins. Öðrum sem gegna trúnaðarstörfum fyrir félagið er einnig boðið á starfsdaginn.

Lesa meira

Bifreiðastæðasjóður Akureyrarbæjar-Tekjur yfir 80 milljónir króna

Heildartekjur Bifreiðastæðasjóðs Akureyrar á liðnu ári náum um 84 milljónum króna.  Gjaldskylda var tekin upp í byrjun apríl á síðastliðnu ári. Á meðan klukkukerfið var við lýði áður en gjaldskylda var tekin upp að nýju voru tekjur af sjóðnum á ársgrundvelli í kringum 30 til 35 milljónir króna.

Lesa meira

Klísturfélagið frá Húsavík á HM í Svíþjóð ,,Það er bara áfram gakk, við höfum fulla trú á okkar mönnum“

Þeir hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir glæsilegan klæðaburð  og framgöngu i hvívetna félagarnir í Klísturfélaginu frá Húsavík,  en fjórmenningarnir hafa sprangað um götur Kristianstad í Svíþjóð og horft á leiki með landsliðinu okkar i handbolta þess á milli.

Vefurinn tók stöðuna á þeim köppum og fyrir svörum var Sigmundur  Hreiðarsson framleiðslustjóri Kjarnafæðis Norðlenska á Húsavík

Lesa meira

Mikil ánægja félaga i Einingu iðju með þjónustu felagins og félagið yfirleitt.

Í október og nóvembr sl. lét félagið, í samstarfi við AFL starfsgreinafélag, Gallup framkvæma könnun um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLS starfsgreinafélags. Um er að ræða sambærilega könnun og gerð hefur verið fyrir félögin sl. 12 ár. Niðurstöður lágu fyrir í lok desember og má sjá þær hér. Það er alltaf fróðlegt að bera þær saman við niðurstöður síðustu ára og sjá hvort miklar breytingar hafa átt sér stað.

Lesa meira