Æi stundum er fólk alltof upptekið af þvi að sýna að það sé fxxl
Tilgangslaus skemmdarverk sem gera ekkert annað en svekkja saklausa fara í taugarnar á öllu venjulegu fólki. Það er þvi engin furða að starfsfólk Skógræktarfélagsins hafi verið pirrað í dag eins og lesa má hér fyrr neðan.
,,Okkur er ekki skemmt, þvílík ónáttúra ! Í morgun tróðum við göngu og skíðabrautir í skóginum, hundruðir gesta nýttu sér það í dag til heilsubótar og yndis.
Um kaffileytið fengum við ábendingu frá manni sem hafði stungist á hausinn í Naustaborgum og ástæðan, jú einhver hafði tekið sig til og rutt nýlögðu göngubrautina alveg frá reiðvegi í norðri að tjaldstæði í suðri.
Fyrir utan að vera framkvæmt í algeru óleyfi er enn óskiljanlegri fullkomin vanvirðing við annara verk og fjöregg samborgara.
Þú sem stóðst að málum getur þó sofið rólegur og þarft ekki að hafa samviskubit hafi það staðið til, starfsfólk Skógræktarfélagsins er búið að laga nokkurn vegin til eftir þig og afstýra frekari slysum.”
Ekki mikil hugsun á bak við þessa aðgerð.