04.09
Ný verslun H&M opnaði á Glerártorgi í morgun og er þetta fyrsta verslunin utan höfuðborgarsvæðisins. Verslunin spannar 2000 fermetra rými. Verslunarstjórinn er Edda Bjarnadóttir og segir hún opnun verslunarrisans hér í bænum vera stóra stund. „Já ég held að það sé óhætt að segja það og við vonum að viðskiptavinir upplifi að með þessu komi eitthvað nýtt til Akureyrar. Við erum að bjóða uppá tísku og gæði á frábæru verði á sjálfbæran hátt og ég trúi því að þetta sé eitthvað sem heimamenn muni meta. H&M snýst líka um að skemmta sér með tísku og líða vel og þessi jákvæði viðburður er vonandi góður fyrir íbúa Norðurlands,“ segir Edda. „Við erum með verulegan fjölda af vörum, mikið úrval af mismunandi deildum og við munum örugglega
Lesa meira
04.09
Hjónin Sævar Helgason og Sara Dögg Pétursdóttir á Akureyri gerðu sér lítið fyrir og klifu Hraundranga í Öxnadal í síðustu viku undir forystu Jökuls Bergmanns fjallaleiðsögumanns. Alls tók ferðin átta og hálfan klukkutíma. Hraundrangi er 1.075 m hár og var fyrst klifinn árið 1956. „Maður er ennþá að vinna úr tilfinningunum eftir þessa ferð,“ sagði Sævar þegar Vikublaðið sló á þráðinn til hans tveimur dögum eftir afrekið. „Ég viðurkenni það alveg að ég hef aldrei verið eins hræddur í lífinu og þarna. Kvöldið áður var ég alveg lystarlaus af stressi og íhugaði að hætta við. En Jökull talaði mig til og við héldum okkar striki og sem betur fer, því þetta var alveg magnað.“
Lesa meira
04.09
Egill Páll Egilsson
Víkurskel ehf. vinnur að því að kanna hagkvæmni þess að byggja upp landeldi á ostrum á Húsavík. Reynslan hefur sýnt að eftirspurn eftir ferskri ostru er mikil bæði hér á landi og erlendis. „Sælkerar heimsins eru margir hverjir sólgnir í ostruna sem hluta af gourmet matarupplifun. Með landeldi er hægt að hafa fulla stjórn á mikilvægum umhverfisþáttum sem ráða miklu um vöxt og gæði ostrunnar eins og vatnshita, seltustigi, sem og magni og samsetningu næringar. Til að tryggja rétta næringu þarf einnig að rækta þörunga í fæðu fyrir ostruna,“ segir Snæbjörn Sigurðarson verkefnastjóri í samtali við Vikublaðið.
Verkefnið er unnið í samstarfi við Háskólann á Akureyri þar sem mikilvæga sérfræðiþekkingu er að finna. Það á bæði við um ostruræktina sjálfa en ekki síður þekkingu á þeim þörungategundum sem ostran nærist á og vaxtarskilyrði þeirra. Einnig styður SSNE, áður Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga, verkefnið með ýmsum hætti. „Nú er unnið að gerð viðskiptaáætlunar um landeldið ásamt undirbúningi að tilraunaræktun í landi sem stefnt er að því að hefja í september. Tilraunaræktunin mun standa í 4-6 mánuði. Þar verða ostrur ræktaðar mismunandi aðstæður í lokuðum kerfum til að finna bestu vaxtarskilyrðin. Sú reynsla verður svo nýtt sem grundvöllur að þróun landeldis í fullri stærð,“ útskýrir Snæbjörn
Lesa meira
03.09
Egill Páll Egilsson
Viðbyggingin er rétt um 160 fermetrar og mun nýtast sem tækjageymsla og búningsklefar fyrir karla og konur. „Við erum að klára fyrsta áfanga en við bíðum eitthvað með að innrétta neðri hæðina þar til við höfum safnað meira fjármagni. Við grófum niður fyrir gólf á neðri hæðina, sjö metra djúpan skurð þannig að þetta er ógnarframkvæmd,“ segir Guðmundur en hann stýrir framkvæmdum.
Lesa meira
03.09
Ég er mikill matgæðingur og elska að borða og útbúa góðan mat,“ segir Sigríður Ýr Unnarsdóttir sem sér um matarhornið þessa vikuna. „Undanfarið hef ég þó verið að halda mig við ansi einfalda matreiðslu þar sem ég er að vinna mikið, hjá Slökkviliðinu á daginn og er með SUP ferðir á kvöldin. Ég borða því mest í vinnunni og nota frekar lausar stundir um helgar til þess að útbúa eitthvað gott með kaffinu.
Það kemur til helst af tvennu, bæði því að bakaríis- og kaffihúsaferðum hefur fækkað síðustu misseri sem og því að úrvalið af sætabrauði án dýraafurða er ekki mikið svo það hvetur mann áfram til að búa til sitt eigið gotterí þegar manni langar í eitthvað sætt. Ég hef verið án dýraafurða í nokkur ár og þrátt fyrir að töluverð aukning sé í framboði af vegan matvælum virðumst við sætabrauðsgrísirnir hafa gleymst svolítið. Svo þá er ekkert annað í boði en að útbúa sitt egið sætabrauð.
Ég ætla að deila með ykkur uppskrift af tveim af uppáhalds sætindunum mínum, fljótlegum bláberjavöfflum annars vegar og svo himneskum kleinuhringjum. Þessar uppskriftir eiga það báðar sameginlegt að vera vegan en hafa þó slegið í gegn, bæði hjá þeim sem eru vegan og líka þeim sem eru það ekki, svo ég skora á ykkur að gefa þessu séns."
Lesa meira
02.09
Sjö manns eru í sóttkví vegna kórónuveirunnar
Lesa meira