14.09
Egill Páll Egilsson
Árið 2014 lokaði Vinnumálastofnun starfsstöð sinni á Húsavík þar sem stofnunin taldi ekki lengur þörf á sérstakri skráningarskrifstofu í sveitarfélaginu. Nú eru horfur í atvinnumálum með þeim hætti að atvinnuleysi er að aukast umtalsvert í sveitarfélaginu og því vaxandi þörf fyrir úrræði Vinnumálastofnunar í sveitarfélaginu.
Lesa meira
14.09
Um 1.700 einstaklingar hafa skráð sig í Facebook-hóp undir nafninu „Enga háhýsabyggð á Oddeyrinni á Akureyri.“ Þar er fyrirhugðum háhýsabyggðum á Oddeyrinni mótmælt harðlega. Skipulagsráðs Akureyrarbæjar hefur lagt til að auglýstar verði breytingar á aðalskipulagi Akureyrar sem nær yfir nýtt íbúðasvæði á Oddeyri.
Lesa meira
14.09
Egill Páll Egilsson
Aðalsteinn Árni Baldursson er líklega best þekktur sem verkalýðsforingi enda verið formaður Framsýnar stéttarfélags lengur en margar kyn slóðir muna. Aðalsteinn sem oftast gengur undir nafninu Kúti í nær samfélaginu, og við höldum okkur við það í þessum texta; er einnig gangnaforingi í Húsavíkurrétt eða fjallkóngur eins og það er gjarnan kallað. Þá er Kúti formaður fjáreigendafélags Húsavíkur og hefur gegnt því embætti lengst af frá stofnun þess 16. júlí 1983. Ég heimsótti Kúta fyrir skemmstu og ræddi við hann um merkileg tímamót og hvernig tímarnir hafa formað þennan mikla áhuga bónda sem að eigin sögn ræktar besta féð á Húsavík og það þótt víðar væri leitað.
Kúti verður sextugur á þessu ári en það eru ekki einu tímamót hans á árinu því um síðustu helgi var réttað í Húsavíkurrétt og tók þessi stolti fjárbóndi þá þátt í göngum í fimmtugasta sinn.
Þegar Kúti var að verða 10 ára byrjaði hann að ganga á fjall eftir fé með föður sínum sem var áhugabóndi á Húsavík ásamt mörgum fleirum. „Þetta var sérstakur söfnuður sem átti kindur á þessum tíma enda var þetta líka hluti af lífsbaráttu þessara tíma. Menn voru að vinna fulla vinnu en áttu líka kindur til að brauðfæða fjölskyldur sínar,“ segir Kúti og bætir við að hann hafi strax drukkið í sig þennan áhuga á sauðfjárbúskap föður síns.
„Frá þessum tíma, 1970 til dagsins í dag hef ég farið í göngur á hverju einasta ári. Hér áður fyrr voru oft settar upp þrennar göngur á haustin. Aðal göngur og síðan eftirleitir. Síðan hefur þetta breyst með tímanum í einar stórar göngur og síðan fara menn á bílum og gjarna með hunda í eftirleitir og handsama fé hér og þar og alls staðar. Svo nú í seinni tíð hefur áhugi á göngum aukist mikið. Þetta er orðið mikið sport og mikið af gestum og jafnvel erlent ferðafólk hefur verið að taka þátt í göngum með okkur.“
Göngum í ár var flýtt vegna veðurs, þær áttu að fara fram 12. september en fóru fram nú á laugardaginn 5. september. Göngurnar fóru fram með talsvert breyttu sniði í ár vegna títt um ræddrar kórónuveiru. En aðgengi utanaðkomandi var bannað og samneyti gangnamanna var takmarkað. „Auðvitað verð ég að virða þessar takmarkanir en það hefði verið gaman að halda upp á þessi tíma mót og bjóða upp á veitingar og annað slíkt, en það bíður bara betri tíma,“ útskýrir Kúti.
Lesa meira
14.09
Egill Páll Egilsson
Félagsmálaráðuneytið samþykkti að við fengjum þessa upphæð til þess að auka virkni og vellíðan barna í sumar sem eru í viðkvæmri stöðu. Félags og barnamálaráðherra stóð fyrir því að þetta yrði gert,“ segir Hróðný Lund, félagsmálastjóri Norðurþings í samtali við Vikublaðið.
Lesa meira
14.09
Flugfélagið Ernir hefur ákveðið að fjölga aftur flugferðum til Húsavíkur.
Lesa meira
13.09
Egill Páll Egilsson
Kjörnefnd kaus sr. Sólveigu Höllu Kristjánsdóttur til starfans og hefur biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, staðfest ráðningu hennar.
Í samræmi við þær breytingar sem nú hafa orðið á starfsmannamálum þjóðkirkjunnar er sr. Sólveig Halla ráðin ótímabundið í starfið með hefðbundnum uppsagnarfresti.
Lesa meira
12.09
Egill Páll Egilsson
Á fundi sínum þann 25. maí sl. fól fjölskylduráð Norðurþings íþrótta- og tómstundafulltrúa og fræðslufulltrúa að gera kostnaðaráætlun og útfæra hugmyndir að rekstri úrræðis fyrir hljómsveitarstarf unglinga á Húsavík samkvæmt tillögu skólastjóra Tónlistarskóla Húsavíkur.
Nú hefur sú kostnaðaráætlun verið lögð fram til kynningar og hefur ráðið fjallað um hana og hugmyndir að rekstri úrræðis fyrir hljómsveitarstarf unglinga á Húsavík. „Ráðinu líst vel á einhverskonar rekstur á slíku hljómsveitarstarfi og felur íþrótta- og tómstundafulltrúi og fræðslufulltrúa að vera í samstarfi við skólastjóra Tónlistarskóla Húsavíkur um frekari útfærslur á hugmyndinni, húsnæði og kostnaðarskiptingu,“ segir í bókun fjölskylduráðs.
Í samtali við Vikublaðið segir Guðrún Ingimundardóttir skólastjóri Tónlistarskóla Húsavíkur að málið snúist um aðstöðu fyrir nemendur sem eru að læra á popp-hljóðfæri eða svo kölluð rythmísk hljóðfæri til að koma saman og æfa sig.
Lesa meira
11.09
Egill Páll Egilsson
Opnun tilboða í uppsetningu nýs aðstöðuhúss fyrir siglingaklúbbinn Nökkva fór fram 10. ágúst síðast liðinn. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á tæpar 190 milljónir króna og bárust tvö tilboð sem bæði voru yfir kostnaðaráætlun.
Lesa meira