KA konur Íslandsmeistarar í blaki
Kvennalið KA í blaki tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn þegar liðið lagði nágrannakonur sínar úr Völsungi 3-1 í hrinum og sigruðu í einvíginu 3 - 0 í leikjum talið.
Kvennalið KA í blaki tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn þegar liðið lagði nágrannakonur sínar úr Völsungi 3-1 í hrinum og sigruðu í einvíginu 3 - 0 í leikjum talið.
Samkvæmt nýjum lögum er sveitarfélögum nú skylt að halda úti sérstakri söfnun á textíl. Dalvíkurbyggð hefur komist að samkomulagi við Rauða krossinn við Eyjafjörð um söfnun, flokkun og sölu á textíl. Á dögunum var formlega gengið frá samningi við Rauða krossinn.
Bæjarráð Akureyrar telur afar brýnt að tillaga til þingsályktunar um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri nái fram að ganga.
Þeir eru vart búnir að taka upp úr ferðatöskum sínum og alls ekki farnir að snerta ,,tollinn“ þegar þeir eru farnir að leggja drög að næstu ferð!
Nú þegar Andrésar andar vikan er hafin er hreint ekki úr vegi að birta hér viðtal sem Ragnar Hólm tók við Hermann Sigtryggsson fyrrum íþróttafulltrúa og móttökustjóra Akureyrar fyrir vef Akureyrarbæjar undir liðnum Akureyringur vikunnar. Hermann sem er einn að upphafsmönnum Andrésar leikanna, er 94 ára gamall en fylgist afar vel með öllu sem fram og er virkur
Framhaldsskólinn á Laugum verður með opið hús á sumardaginn fyrsta, 24. apríl 2025, frá kl. 13-16.
49. Andrésar andar leikarnir í skíðaíþróttum verða haldnir af Skíðafélagi Akureyrar (SKA) í Hlíðarfjalli við Akureyri dagana 23.-26. apríl 2025
Sýning Lindu Berkley gestalistamanns Gilfélagsins í apríl mánuði opnar í Deiglunni laugardaginn 26. apríl kl. 14.00
„Ástæðan fyrir þessari bókun er að fullorðið fólk, sem ekki er með snjallsíma eða tölvu, hefur sagt frá því að það treystir sér ekki lengur til að fara í miðbæinn. Það leggur ekki í að fara í þá fáu og flóknu gjaldtökustaura sem eru í bænum og hafa jafnvel enga til að skrá bílastæði fyrir sig í Akureyrarappinu, sem er hægt að gera heima í tölvu. Það er mjög bagalegt ef fólk kemst ekki til sýslumanns, í Tryggingastofnun, í banka eða á aðra þá staði, sem eru eingöngu opnir á gjaldtökutíma.,“ segir Hallgrímur Gíslason fulltrúi í öldungaráði á Akureyri.
„Það var gríðargóð stemmning, smekkfullt hús og tónleikarnir eftirminnilegir,“ segir Arnar Ingi Gunnarsson formaður stjórnar Karlakórsins Hreims í Þingeyjarsýslu. Kórinn hélt tónleika í Ýdölum og síðar var sama efnisskrá í boði í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit. Gestir voru sammála um virkilega fallegan söng og hljómfagran. Kórinn fagnar 50 ára afmæli sínu á árinu