Linda Berkley Untethered – Óbundið

Sýning Lindu Berkley gestalistamanns Gilfélagsins í apríl mánuði opnar í Deiglunni laugardaginn 26. apríl kl. 14.00
- Linda Berkley er frá Norðvestur strönd Kyrrnahafsins.Sýning hennar er opin dagana 26.–27. apríl 2025 frá kl. 14:00–17:00.
- Skyggnusýning á „Rozome“ og „Katazome“ japönsku resist litunaraðferðinni verður laugardaginn 26. apríl 2025 kl.15.00. Aðgangur er ókeypis.
„Mig hefur dreymt um að koma aftur til Íslands. Ég er enn djúpt snortinn af kynningu minni af sláandi umfangi og stærð íslensks landslags/sjávarlandslags/himinlandslags. Áhrifum þess á íslenska menningu og listræn sjónarhorn, sem ég upplifði sem gestalistamaður á NES vinnustofum á Skagaströnd fyrir tíu árum.
Um þessar mundir vinnur Linda með ‘Rozome’, ‘Roketsuzome’ og ‘Katazome’ (japanska tækni) og náttúruleg litarefni; hún kannar útgeislun og innbyrðis tengsl lita, jafnvægi í hönnun sem er óbundin vestrænu sjónarhorni eða línugæðum. Í list sinni byggir Linda á sterkri teikningu, tilraunakenndri Rozome-tækninni og vatnslitarannsóknum. Rannsóknir sem skila sér í sjónrænum mynstrum, táknum og tjáningu; samsvörun milli hinns innri heims og þess ytri.“
Berkley mun kynna sýningu sína „Untethered“ í sal Deiglunnar 26. og 27. apríl, frá 14:00-17:00 á báða dagana, þar sem hún sýnir afrakstur sköpunarsinnar í teikningu, vatnslitum og tilraunakenndu japönsku málverki („Rozome“, byggt á hefðbundinni kimono hönnun). Linda Berkley mun einnig halda skyggnukynningu á verkum sínum þar sem hún útskýrir ferlið við japönsku litunaraðferðirnar ‘Rozome’ og ‘Katazome’ laugardaginn 26. apríl klukkan 15:00.
Linda Berkley er myndlistarkona sem býr við norðvesturströnd Kyrrahafsins með eiginmanni sínum og ketti, vinnur á vinnustofu sinni og í náttúrunni, www.lindaberkley.com, til að fagna sköpunarferlinu og krafti athugunarinnar.
Linda lét af störfum sem kennari eftir 27 ár sem háskólalistprófessor. Menntunarbakgrunnur hennar felur í sér BFA Museum School of Fine Arts, Boston, MFA University of Arizona og gráðu í myndskreytingu frá háskólanum í Washington. Hún hefur sótt gestavinnustofur í Japan, DrawInternational Frakklandi, Vermont Studio School og Anderson Ranch, Colorado.