Andrésar andar leikarnir 2025

Andresar andar leiikarnir slá samkvæmt venju botn í skíðavertíðina á Akureyri
Andresar andar leiikarnir slá samkvæmt venju botn í skíðavertíðina á Akureyri

49. Andrésar andar leikarnir í skíðaíþróttum verða haldnir af Skíðafélagi Akureyrar (SKA) í Hlíðarfjalli við Akureyri dagana 23.-26. apríl 2025

Metfjöldi á leikunum 2025

Þrátt fyrir erfiðan skíðavetur með snjóleysi og sunnan áttum víða um land þá hefur það ekki áhrif á aðsókn barnanna að leikunum í ár, en 930 börn eru skráð til leiks og hafa leikarnir aldrei verið svona vel sóttir.

Undirbúningur leikanna hefur staðið yfir síðan s.l. haust og búast mótshaldarar við miklu fjöri á leikunum í ár, enda Andrésarleikarnir alltaf hápunktur hvers skíðavetrar hjá börnunum og marga sem þyrstir í að koma til Akureyrar og taka þátt í gleðinni.

Aðstæður í Hlíðarfjalli eru með ágætum þrátt fyrir lítinn snjó. Hafa starfsmenn Hlíðarfjalls unnið hörðum höndum við að ýta og flytja til snjó og skapa góðar aðstæður til að leikarnir geti farið fram með eðlilegum hætti.

Nú eru 930 börn skráð frá 18 íþróttafélögum á Íslandi. Flestir iðkendur koma frá heimamönnum í Skíðafélagi Akureyrar eða 205 keppendur, en Skíðadeild Ármanns eru næst fjölmennastir með 102 þátttakendur.

Þátttakendur í alpagreinum eru 677, 184 í skíðagöngu og 97 taka þátt í snjóbretta greinum. Auk þess eru mörg börn að taka þátt í fleiri en einni grein skíðaíþróttarinnar.

Að venju verða leikarnir settir í Íþróttahöllinni á Akureyri síðasta vetrardag miðvikudagskvöldið 23. apríl kl. 19:30 að lokinni myndarlegri skrúðgöngu allra þátttakenda frá Lundarskóla/Íþróttasvæði KA kl. 19. Fimmtudag, föstudag og laugardag er svo keppt í öllum greinum, auk þess sem yngri þátttakendur fara í leikjabrautir. Veglegar kvöldvökur og verðlaunaafhendingar í Íþróttahöllinni eru í lok hvers keppnisdags.

Skíðaskotfimi

Nýlunda í ár er að á leikunum verður kynning á skíðaskotfimi sem hefur verið vaxandi íþrótt á Íslandi undfarin ár, en greinin nýtur mikilla vinsælda víða um heim. Sjá nánar í meðfylgjandi dagskrá.

Um leikana

Andrésarleikarnir eru stærsta skíðamót landsins ár hvert með um 900 keppendur á aldrinum 4-15 ára. Þeim fylgja þjálfara, fararstjórar, foreldrar og fjölskyldur og má því gera ráð fyrir að um 3-4000 manns sæki leikana með einum eða öðrum hætti.

Andrésarleikarnir eru afar mikilvægur viðburður fyrir alla bæjarbúa, fyrirtækin í bænum, barnamenningu bæjarins, ásamt því að vera stærsti og mikilvægasti einstaki vetraríþróttaviðburður sem fram fer hér á svæðinu á hverju ári.

Um langt skeið hefur verið keppt bæði í alpagreinum skíðaíþrótta sem og skíðagöngu, en árið 2012 var í fyrsta skipti keppt á snjóbrettum og hefur sú grein verið að eflast og stækka innan leikanna.

Einnig hefur verið keppt í svokölluðum stjörnuflokki s.l. u.þ.b. 12 ár, en þar keppa fatlaðir eða hreyfihamlaðir íþróttamenn.

Nú um nokkurra ára skeið hefur 4 og 5 ára börnum einnig boðið að taka þátt í leikunum. Þessi börn taka þátt í leikjabraut þar sem allt snýst um að vera með og skemmta sér, en ekki að sigra. Fá allir þátttakendur í leikjabraut verðlaun fyrir þátttökuna og allir fara því brosandi heim. Í ár eru 78 börn á þessum aldri skráð til leiks.

Líflegur fréttaflutningur verður á Facebook síðu leikanna auk þess sem úrslit og fleiri fréttir verða birtar á www.skidi.is

Frá þessu segir í fréttatilkynningu frá undirbúningsnefnd Andrésar andar leikana

Nýjast