Fyrsti heimaleikur Akureyrar í Olísdeild karla
Fyrsti heimaleikur Akureyrar í Olísdeild karla í handbolta fer fram í kvöld þegar liðið tekur á móti Gróttu í KA heimilinu.
Grótta stóð einmitt uppi sem sigurvegari á Opna Norðlenska mótinu á dögunum og þótti leikur liðanna þá hörkuspennandi. Þar var það Grótta sem landaði sigrinum á lokaandartökum leiksins.
Viðureignir Akureyrar og Gróttu á síðasta tímabili buðu upp á ýmislegt, Grótta kom, sá og sigraði hér fyrir norðan í fyrsta leik liðanna, Akureyri hefndi ófaranna og vann útileikinn í annarri umferð. Í þriðju umferðinni mættust liðin aftur á Seltjarnarnesinu og úr varð háspennuleikur sem lauk með jafntefli. Það er því ýmislegt sem bendir til hörku spennandi viðureignar í kvöld.
Leikurinn hefst klukkan 19:30 í KA heimilinu en á heimasíðu KA er mælt með að fólk mæti tímanlega, því fyrir leikinn verður hægt að ganga frá kaupum á ársmiðum, silfur- og gullkortum fyrir tímabilið.