Elfar Árni er kominn heim
„Drottinsdýrðardagur í vallarhúsinu í dag þegar undirritanir á samningum fóru fram!“ segir í tilkynningu á Facebook síðu Grænahersins, stuðningsmanna hóps Völsungs á Húsavík.
Völsungur landaði 2. sæti í 2. deild karla í fótbolta í sumar og tryggðu sér þar með þátttökurétt í Lengjudeildinni að ári. Undirbúningur fyrir sumarið er þegar hafið með því að styrkja hópinn en í dag skrifaði Elfar Árni Aðalsteinsson undir samning við Völsungs eftir tæplega 13 ára fjarveru frá uppeldisfélaginu. Við sama tækifæri endurnýjuðu nokkrir leikmenn samninga sína við Völsungs og Aðalsteinn Jóhann Friðriksson verður áfram þjálfari.
Elfar Árni Aðalsteinsson er snúinn heim og gerir samning til eins árs. Elfar fór í Breiðablik 2012 og spilaði þar í þrjú ár, 56 leiki og skoraði 14 mörk. Þaðan lá leið hans í KA þar sem hann spilaði við góðan orðstír síðustu 10 árin, 209 leiki í deild og bikar og skoraði 73 mörk.
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson framlengdi samning sinn sem þjálfari meistaraflokka til tveggja ára í dag. Alli Jói er að verða hokinn af reynslu, en hann hefur stýrt karlaliðinu síðustu tvö ár og kvennaliðinu síðustu fimm ár. Alli átti frábært sumar og sýndi snilli sína er hann fór upp með strákana og í harðri toppbaráttu með stelpurnar fram í síðasta leik.
Arnar Pálmi Kristjánsson, fyrirliði, framlengdi samning sinn til tveggja ára. Arnar er 22ja ára og hefur verið algjör lykilmaður í liði Völsungs síðustu ár. 139 leikir fyrir Völsung í deild og bikar og 15 mörk skoruð. Ekki misst úr mínútu síðan sumarið 2019! Alvöru fyrirmynd og leiðtogi.
Bjarki Baldvinsson er hvergi nærri hættur og skrifaði undir samning til eins árs en Bjarki er langleikjahæsti leikmaður í sögu Völsungs með 325 leiki og 50 mörk í deild og bikar. 34 ára gamall og í honum býr ómetanleg reynsla og gæði í Bjarka sem verið hefur máttarstólpi í Völsungsliðinu síðustu 11 ár.
Rafnar Máni Gunnarsson framlengir til eins árs en þessi 22ja ára altmuligt leikmaður og hlaupavél hefur verið einn mikilvægasti maður liðsins undanfarin ár. Rafnar á að baki 112 leiki fyrir Völsung í deild og bikar og hefur skorað í þeim 7 mörk.
„Við bjóðum Elfar velkominn heim og fögnum framlengingunum við Arnar, Bjarka og Rafnar. Liðið hefur hafið undirbúning sinn fyrir Lengjudeildina og von er á frekari fregnum á næstunni,“ segir á síðu Græna hersins.