Sandra María og Alfreð Leó íþróttafólk Þórs 2024

Íþróttafólk Þórs 2024.      Myndir Thorsport.is
Íþróttafólk Þórs 2024. Myndir Thorsport.is

Þau  Sanda María Jessen knattspyrnukona og Alfreð Leó Svansson rafíþróttamaður voru i gær  útnefnd sem íþróttakona  og karl Þórs  fyrir  árið 2024.

Í rökstuðningi  með kjörinu segir:

Sandra María Jessen, knattspyrnukona, tók þátt í öllum leikjum Þórs/KA í öllum KSÍ-mótunum og var í byrjunarliði í öllum þeirra nema einum. Í einum bikarleik kom hún inn sem varamaður eftir leikhlé og skoraði sigurmarkið skömmu síðar. Hún spilaði 23 leiki í Bestu deildinni, þrjá í Mjólkurbikarnum og sex í Lengjubikarnum.

Sandra María var valin besti leikmaður Bestu deildarinnar af leikmönnum deildarinnar og var að auki markadrottning deildarinnar. Hún skoraði alls 33 mörk í leikjum Þórs/KA í KSÍ-mótunum, 22 mörk í 23 leikjum í Bestu deildinni, tvö mörk í þremur leikjum í Mjólkurbikarkeppninni og níu mörk í sex leikjum í Lengjubikarnum. Að auki átt hún níu stoðsendingar í þessum 32 leikjum.

Þá kom hún við sögu í níu landsleikjum, í byrjunarliði í mörgum þeirra.  

Alfreð Leó Svansson, rafíþróttamaður, hefur unnið allt sem hægt er að vinna og náði að landa Íslandsmeistaratitlinum loksins með Þór í ár. Alli er einn af lykilleikmönnum Þórs í Ljósleiðaradeildinni, hann hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína á þessu tímabili, sérstaklega með AWP byssunni, Alli hefur sýnt framúrskarandi hæfileika og nákvæmni, sem hefur gert hann að ómissandi leikmanni í liðinu.

Með stöðugri frammistöðu og mikilvægu framlagi i leikjum hefur Alli verið lykilmaður í mörgum sigrum Þórs. Það er ljóst að hann er einn af bestu leikmönnum deildarinnar og framtíðin er björt fyrir hinn síunga Alla og Þórsliðið.

Einnig var lið Þórs valið lið ársins í vor. 

 

Nýjast