„Amaróhúsið“ sett í sölu
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE) hefur sett gömlu heilsugæslustöðina á Akureyri, Hafnarstræti 99-101, í sölu ásamt öllu því sem eigninni fylgir. Óskað er eftir tilboði í eignina. Fasteignamat er tæplega 340 milljónir króna og brunabótamat 860 milljónir.
Upphaflega var húsið byggt sem deildaskipt verslunarmiðstöð með inngangi á 5. hæð við Gilsbakkaveg og á 1. hæð við Hafnarstræti 97. Byggingarár eignarinnar er 1961.
Í maí 2023 var tekin ákvörðun um að flytja stærsta hlutann af starfsemi HSN á Akureyri í Sunnuhlíð meðal annars vegna slæmra loftgæða í húsinu sem hentaði ekki starfsemi heilsugæslu.
Stærð er tæpir 2000 fermetrar og er eignarhluturinn á fjórum hæðum. Tvær lyftur hvor í sínum stigaganginum eru í húsinu ásamt góðri vörulyftu sem er samnýtt með öðrum.
„Eign á besta stað, miðsvæðis á Akureyri og spennandi verkefni fyrir verktaka eða laghenta að gera eignina íbúðarhæfa eða fyrir aðra starfsemi,” segir í fasteignaauglýsingu ríkisins. Þar kemur einnig fram að komið sé að miklu viðhaldi utanhúss til að koma í veg fyrir áframhaldandi leka og skemmdir innanhúss.