Stórtap hjá SA
Íslandsmeistararnir í Skautafélagi Akureyrar (SA) steinlágu fyrir Esju í gærkvöld á Íslandsmótinu í íshokkí karla, 6-0. Leikurinn fór fram í Skautahöllinni í Laugardal.
Esja vann leikhlutana þrjá 1:0, 2:0 og 3:0.
Björn Sigurðarson átti stórleik í liði Esju og skoraði fimm af sex mörkum liðsins. Hann kom liðinu í 4:0 og lokaði leiknum fyrir Esju en fimmta mark leiksins skoraði Ólafur Björnsson.
Staðan í Hertz-deildinni er þannig að Esja er efst með 26 stig, þá kemur Björninn með 16 stig, SA í þriðja sæti með 14 stig og loks SR með 10 stig.