Stapi stefnir ALMC hf. til greiðslu á kröfum sjóðsins

Á dögunum var þingfest stefna í Héraðsdómi Reykjavíkur, þar sem Stapi lífeyrissjóður stefnir ALMC hf. (áður Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki)  til greiðslu á kröfum sjóðsins, en þeim kröfum var lýst of seint vegna mistaka Lögmannsstofunar ehf., eins og kunnugt er, segir í frétt á heimasíðu Stapa.  

Í stefnunni kemur fram að sjóðurinn telur að krafan eigi að halda gildi sínu og fá sömu meðferð og aðrar kröfur, þar sem Straumur-Burðarás (nú ALMC hf.) hafi náð nauðarsamningum við kröfuhafa  sína, en ekki farið í gjaldþrot. „Það er mikilvægt að þetta mál sé loks komið af stað, þannig að úr þessu fáist skorið. Þetta hefur tekið langan tíma. Bíða þurfti niðurstöðu í því hvort nauðarsamningar yrðu samþykktir og að félaginu yrði kosin ný stjórn, áður en við gátum komið þessu fyrir dóm. Það er líklegt að málið taki nokkurn tíma fyrir dómstólum, eins og ástandið er núna, og eins líklegt að héraðsdómsniðurstöðu verði áfrýjað. Við eigum því ekki von á niðurstöðu alveg á næstunni"  sagði Kári Arnór Kárason, framkvæmdastjóri sjóðsins, jafnframt á heimasíðu Stapa.

Fjárhæð kröfunnar er 4,4 milljarðar króna en vegna þeirrar óvissu sem ríkt hefur um afdrif kröfunnar hefur hún verið skrifuð niður að fullu í bókum Stapa, samkvæmt því sem fram kom í ársreikningi lífeyrissjóðsins fyrir árið 2009.

Nýjast