Ökumenn í vandræðum á Fljótsheiði
Hjálparsveit skáta Reykjadal var kölluð út rétt upp úr klukkan 22 á sunnudagskvöldið vegna ferðafólks sem lent hafði utan vegar á Fljótsheiðinni austanverðri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.
Fljótsheiði er leiðin frá Goðafossi, eða Skjálfandafljóti yfir í Reykjadal og liggur um 250 metra yfir sjávarmáli.
Fólkið hafði misst bíl sinn út af veginum á leið niður af heiðinni austanverðri. Þar sem bíllinn hallaði talsvert óttaðist fólkið að hann myndi velta og treysti sér ekki til að vera inn í bílnum. Þar sem veður var ekki gott, nokkuð hvasst, skafrenningur og hitastig undir frostmarki, var áríðandi að koma fólkinu í skjól.
Björgunarsveitin var komin á staðinn um klukkan 23 og var fólkinu komið fyrir í heitum bílum og flutt niður að Laugum í húsnæði sveitarinnar.
Bíll þeirra var svo spilaður upp veg aftur og gat því fólkið haldið áfram för þegar um klukkustund var liðin af nýjum degi.