Fjórði sigur Þórs í Dominos-deildinni
Þór Akureyri sigraði ÍR 78:62 í áttundu umferð Dominos-deildar karla í körfubolta í kvöld. Leikurinn fór fram á Akureyri. Þetta var fjórði sigur Akureyringa í deildinni.
Heimamenn tóku strax frumkvæðið í leiknum og voru með yfirhöndina allann leikinn og fór munurinn sjaldan niður fyrir 10 stig.
Danero Thomas og George Beamon fóru á kostum í liði Þórs. Hvor um sig var með 22 stig og 12 fráköst. Þór er að mjaka sér upp töfluna eftir fjóra sigra í síðustu fimm leikjum eftir frekar erfiða byrjun í deildinni og eru nú komnir upp í sjöunda sæti með átta stig. Njarðvík og Þór Þorlákshöfn eru í sætunum fyrir ofan með átta stig einnig en með hagstæðara stigaskor.
Næsti leikur Akureyringa er einmitt útileikur gegn Njarðvík á fimmtudag.