Sjötíu manns í Sveppagöngu

Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sá um að fræða og upplýsa þátttakendur af sinni alkunnu snilld.  Myndir …
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sá um að fræða og upplýsa þátttakendur af sinni alkunnu snilld. Myndir Skógræktarfélag Eyfirðinga

Vel var mætt í árlega sveppagöngu Skógræktarfélags Eyfirðinga en sjötíu manns voru með í göngunni sem fram fór á Melgerðismelum á dögunum.

Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sá um að fræða og upplýsa þátttakendur af sinni alkunnu snilld. Áhugi almennings á að nýta sér villta sveppi sem finna má víða í náttúrunni hefur aukist hin síðari ár. Víða í nágrenni Akureyrar má sjá fólk á ferðinni með körfu og hníf í leit að góðum sveppum.

Áhugi almennings á að nýta villta sveppi fer vaxandi.

 

Nýjast