Svikahrappar eru óvenju iðnir þegar fólk fer í frí 

Páskarnir eru dottnir inn og hugurinn hjá mörgum er kominn í ró, stilltur á andvaraleysi. En tíminn í kringum árstíðarbundin frí eins og páska, sumarleyfi eða jól- og áramót er einmitt sá tími sem við þurfum að vera sérstaklega vel á varðbergi gagnvart mögulegum svikum.

Í gær fékk samstarfsmaður minn meðfylgjandi tölvupóst sem virtist vera frá mér. Reyndar er íslenskan frekar afskræmd, ég tel mig í það minnsta hafa betra vald á tungumálinu og því var tölvupósturinn ekki mjög trúverðugur. Skemmst er frá því að segja að við féllum ekki fyrir þessari tilraun. Þessi póstur til mín er sannarlega ekkert einsdæmi heldur einn af fjölmörgum efnislega sambærilegum svikapóstum sem dynja á einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum alla daga ársins. Í mörgum tilfellum eru skrifin á mun betri íslensku, trúverðugleiki meiri og því auðvelt að falla fyrir þeim.

A screenshot of a chat

AI-generated content may be incorrect.
Oftar en ekki erum það við sjálf, mannfólkið, sem er veikasti hlekkurinn í svikum. Því er afar mikilvægt að flýta sér hægt og sýna heilbrigða tortryggni er snýr að öllum samskiptum í hinum stafræna heimi.
Þegar kemur að greiðslu fjármuna er gott að temja sér það verklag að staðfesta með símtali að greiðsla eigi að fara á viðkomandi stað. Sérstaklega þegar um óþekktan aðila er að ræða, eða þegar breyta á hefðbundnum greiðsluleiðum.
 
Sífellt fleiri svikatilraunir í gegnum skilaboð og símtöl
 
Það þarf að fara sérstaklega varlega í kringum rafrænu skilríkin og opna þau ekki nema vera þess fullviss hvað er verið að samþykkja. Ef þú telur fjölskyldumeðlim vera að biðja þig að opna fyrir skilríkin, taktu þá símtal til að gulltryggja það.
Það hefur ítrekað verið varað við Messenger svindli þar sem óskað er eftir símanúmeri í gegnum Messenger. Í kjölfarið freistast glæpamennirnir að komast inn í gegnum samþykkt á rafrænum skilríkjum.
Alla tengla sem fólk fær senda, hvort sem er á SMS formi, tölvupósti eða í gegnum samskiptaforrit, skal forðast að opna nema vera fullviss um hvað sé þar að baki, sérstaklega ef skilaboðin tengjast greiðslu fjármuna, t.d. meintri inneign hjá Skattinum eða skuld við Póstinn. Þá er afar algengt að reynt sá að fá fólk til að opna island.is.
Einnig eru fjölmörg dæmi um svikatilraunir þar sem svikarar hringja úr því sem virðist vera íslensk símanúmer þó þeir séu yfirleitt enskumælandi. Í símtölunum er aðilum oftar en ekki talin trú um að viðkomandi eigi rafmyntir eða sé boðin fjárfestingatækifæri í rafmyntum. Best er að slíta slíkum símtölum strax enda að öllum líkindum tilraun til svika. Það sem skiptir máli er heilbrigð tortryggni og að láta ekki leiða sig í gildru.
 
Gervigreindin nýtt í vaxandi mæli
 
Svikararnir eru oftar en ekki hluti af glæpasamtökum sem verða sífellt þróaðri, skipulagðari og gerðir út af fjársterkum aðilum, jafnvel af þjóðríkjum. Þeir nýta sér gervigreind þannig að það getur oft verið erfitt að greina og verjast svikum. Glæpahringir hafa gott ímyndarafl og finna sífellt nýjar leiðir til að gera okkur lífið leitt.
 
Nokkur góð ráð gegn svikum
  •  
  • Áður en þið deilið viðkvæmum fjárhags- eða persónuupplýsingum eða gangið frá greiðslu fjármuna er mikilvægt að ganga úr skugga um að ekkert sé óvenjulegt í samskiptunum.
  • Til að mynda er gott að skoða hvort um rétt símanúmer, netfang eða slóð á heimasíðu sé að ræða.
  • Velta fyrir sér hvort þú hafir átt von á skilaboðum, tölvupósti eða símtali frá viðkomandi aðila eða hvort mögulega sé um svikatilraun að ræða.
  • Endurnýtið ekki lykilorð, notið lykilorðabanka og fjölþátta auðkenningu. Í sumum tilfellum geta fyrirtæki einnig tekið upp auðkennislykla. Þessar varúðarráðstafanir hafa bjargað háum fjárhæðum.
  • Einnig er skynsamlegt að skoða reglulega kortayfirlit til að kanna hvort þar sé að finna greiðslur sem þú kannast ekki við.
Fleiri ráð til að verjast netsvikum má finna á vefnum taktutvær.is
Gruni þig að þú hafir orðið fyrir svikum er mikilvægt að bregðast strax við til að lágmarka tjón með því að hafa samband við banka eða kortafyrirtækið þitt, láta loka kortum og breyta lykilorðum eins og við á. Yfirleitt er hægt að byrja á að frysta eigin kort í heimabanka eða bankaappi.
Sýnum árverkni og látum ekki glæpamenn skemma fyrir okkur páskana og taka frá okkur góða skapið. Verjum páskunum með þeim sem okkur þykir vænst um.
 
Gleðilega páska.
 
Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu.

Nýjast