Frá vinstri: Andri Rúnar Hákonarson, Emilía Björk Óladóttir, Sunneva María Vilhelmsdóttir, Lárus Vinit Víðisson. Myndir/samherji.is
Um fjörutíu ungmenni eru ráðin til starfa í vinnsluhúsi Útgerðarfélags Akureyringa á Akureyri í sumar til að leysa af fastráðið starfsfólk vegna sumarleyfa.
Starfsmenn vinnsluhússins eru að jafnaði um eitt hundrað og tuttugu, þannig að hlutfall sumarstarfsfólks er nokkuð hátt þessar vikurnar.
Mikilvægt starfsfólk
Sunneva Ósk Guðmundsdóttir framleiðslustjóri segir að vel hafi gengið með ráðningar.
„Það er alltaf töluverð ásókn í sumarstörfin og því miður ekki hægt að verða við öllum umsóknum. Flest sem sækja um vinnu hafa kynnt sér starfsemina og vita ágætlega að hverju þau ganga. Áður en þessir nýju starfsmenn hefja störf er efnt til nýliðafræðslu, þar sem farið er yfir helstu þætti starfseminnar og spurningum svarað. Án sumarafleysingafólksins væri líklega ekki hægt að halda úti fullri starfsemi svo þessir starfsmenn eru mikilvægir. ,,Þetta er upp til hópa hörku duglegt fólk, auk þess sem launin hérna eru líklega talsvert hærri en gengur og gerist hjá ungu fólki.“
Ég hef ákveðið að sækjast eftir 1.sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í Alþingiskosningum 30. nóvember næstkomandi.
Frá því að ég hlaut trúnað ykkar og kjör á Alþingi 2016 hef ég af af öllum kröftum verið að vinna að hag kjördæmis okkar og þjóðarinnar allrar.
Áherslur mínar hafa allan þann tíma verið á þau grundvallarmál sem skipta mestu fyrir verðmætasköpun í landinu: Atvinnumál, lífskjör fólks og búsetuskilyrði í Norðausturkjördæmi, samgöngumál, heilbrigðismál, raforkumál, málefni ferðaþjónustunnar, landbúnaðarmál, sjávarútvegsmál, byggðamál, menntun og menningarmál og svo mætti lengi telja. Jafnframt hef ég haft trúnað Alþingis til að vinna að efnahagsmálum, ríkisfjármálum og utanríkismálum. Ég hef verið virkur í umræðum í öryggis og varnarmálum og leitt þátttöku íslands á erlendri grund í þeim efnum. Samgöngumál hafa verið sérstakt baráttumál enda má segja að ekkert skipti velferð fólks á landsbyggðinni meira máli en góðar og öruggar samgöngur.
Reynsla og þekking er verðmæt í störfum á Alþingi. Með þátttöku minni og tengslum við atvinnulíf, við sveitarstjórnarmál og áralöng reynsla af þingmennsku hef ég öðlast skarpa sýn á þau málefni sem þurfa sérstaka athygli á vettvangi stjórnmála á næstu áru
Miðvikudaginn 16. október formfestum við svæðisbundið samráð um varnir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Norðurlandi eystra undir merkjum Öruggara Norðurland eystra.
„Tjónstilkynningum heldur áfram að fjölga en þær eru nú orðnar rétt í kringum sextíu hér á Akureyri,“ segir Gunnur Ýr Stefánsdóttir skrifstofustjóri á skrifstofu forstjóra Norðurorku en fyrirtækið tekur við tilkynningum um tjón sem urðu á Akureyri vegna truflana í flutningskerfi Landsnets 2. október síðastliðinn. Rarik heldur utan um tjónstilkynningar utan Akureyrar.
Flest framboðin í Norðausturkjördæmi munu stilla upp á lista sína. Undantekningin er Sjálfstæðisflokkurinn sem velur fimm efstu á kjördæmisþingi og Píratar sem halda prófkjör. Vinsælt er að koma saman í Mývatnssveit til að velja listana.
„Þetta er mikill léttir og mikil gleði að málið er nú í höfn,“ segir Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins en hún skrifaði fyrr í dag undir samning um leigu á húsnæði á Akureyri. Samningurinn er til þriggja ára.
Ljóst er að kosið verður á milli minnst tveggja einstaklinga í oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Valið verður á tvöföldu kjördæmisþingi á sunnudag.
Jens Garðar Helgason hefur tilkynnt framboð sitt til oddvita Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í komandi þingkosningum. Jens Garðar, hefur langa reynslu af störfum í atvinnulífi og sveitarstjórn, segir framboðið byggt á þörf fyrir sterka forystu sem gæti betur hagsmuna Norðausturkjördæmis.
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á málefnum samfélagsins og trúi því að með sameiginlegu átaki getum við tryggt áframhaldandi framfarir og velferð í kjördæmi sem og landinu í heild,“ segir Jens Garðar. „Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið sterkt hreyfiafl íslenskra stjórnmála og þjóðlífs. Ég vill leggja mitt af mörkum í baráttu fyrir framgangi sjálfstæðisstefnunnar," segir hann.