Ein með öllu í gegnum linsur Hilmars Friðjónssonar
Einni með öllu lauk í gærkvöldi með glæsilegum Sparitónleikum og flugeldasýningu. Óhætt er að fullyrða að mjög mikil þátttaka var meðal bæjarbúa og gesta og liklega hafa ekki oft verið jafnmargir samankomnir á tónleikasvæðinu og í gærkvöldi.
Allt fór vel fram sem er svo sannarlega ánægjulegt.
Annars má segja að út um allan bæ hafi fólk veriða gera sér glaðan dag alla helgina og eins og á tónleikunum í gær var mikil og góð þátttaka víðsvegar og brosandi andlit út um allt.
Sú breyting var í ár að mikið ar um að var á miðbæjarsvæðinu og er ljóst að sú breyting féll i kramið hjá fólki, Mömmur og möffins voru að þessu sinni með sölu á torginu og seldist upp hjá þeim.
Skógardagurinn var þó eðlilega í Kjarnaskógi í gær og þangað lét fólk sig ekki vanta, Súlur Vertical eflist og verður vinsælla.
Virkilega velheppnuð helgi og ástæða til þess að óska Dabba Rún og Viðburðastofu Akureyrar til hamingju með velheppnaða dagskrá sem höfðaði svo sannarlega til allra.
Hilmar Friðjónsson myndasmiður var að ferð og flugi um bæinn og festi augnablikið, hann gaf okkur góðfuslegt leyfi fyrir myndbirtingum sem hér koma.