Fréttir

„Sá sem ekki kann að elda hefur ekkert að gera á þing“

Guðmundi Vilhjálmssyni er margt til lista lagt en hann á og rekur Garðvík ehf. á Húsavík. Samkvæmt síðasta matgæðingi er Guðmundur matmaður mikill og því vel við hæfi að hann taki við keflinu. „Sá matur sem mér þykir bestur sem hátíðarmatur er reyktur kjúklingur. Móðir mín tjáði mér þegar hún dvaldi langdvölum í Reykjavík með veika systur mína, þá hafi hún farið með Margréti móðursystur sinni á Hótel Holt og þær fengið þennan dýrindisrétt. Margrét móðursystir mömmu var gift Gísla Guðmundssyni alþingismanni og var mikið samband á milli heimilanna,“ segir Guðmundur sem er matgæðingur vikunnar, við gefum honum orðið.
Lesa meira

„Kemur mér alltaf jafn mikið á óvart“

Kraftlyftingamaðurinn Viktor Samúelsson úr KFA var valinn íþróttakarl Akureyrar árið 2020 á dögunum en kjörinu var lýst á verðlaunahófi á vegum Íþróttabandalags Akureyrar og frístundaráðs Akureyrarbæjar í Menningarhúsinu Hofi. Viktor á langan afreksferil að baki og er þetta í fimmta skipti sem hann er kjörinn íþróttakarl Akureyrar. „Þetta er alltaf jafn gaman og mikill heiður. Það kemur mér alltaf á óvart þegar ég er valinn,“ segir Viktor. Spurður um hver sé lykillinn að þessum góða árangri segir Viktor ekki hafa greið svör. „Ég veit það eiginlega ekki satt að segja. Ég hef aldrei búist við því að hljóta þessa nafnsbót nema í eitt skipti kannski. Ég einbeiti mér bara að mínu sporti og því sem ég er að gera, tek eitt mót í einu og fylgist mjög lítið með því hvað aðrir eru að gera.“
Lesa meira

80 fullorðnir í einu í Sundlaug Akureyrar

Lesa meira

Úrskurður um samruna Norðlenska og Kjarnafæðis gæti tafist

Gert var ráð fyrir lokaúrskurði Samkeppniseftirlitsins þann 19. febrúar nk. en að sögn Ágústs Torfa Haukssonar, framkvæmdastóra Norðlenska gæti það dregist eitthvað.
Lesa meira

Amma þín hvað

Lesa meira

Opnun nýju skíðalyftunnar frestast enn

Ekkert gefið upp um hver endanlegur kostnaður við nýju lyftuna verður.
Lesa meira

Vikublaðið kemur út í dag

Lesa meira

Hönnun á viðbyggingu við flugstöðina komin langt á veg

Lesa meira

Gervigrasvellinum á Húsavík lokað vegna bilunar

Vegna bilunar í dælubúnaði hefur íþrótta- og tómstundafulltrúi Norðurþings tekið ákvörðun um að loka gervigrasvellinum á Húsavík tímabundið. „Ákvörðunin er tekin með það fyrir augum að hlífa vellinum og koma í veg fyrir skemmdir. Vegna áðurnefndar bilunar og mikils kulda er völlurinn ónothæfur og ekki óhætt fyrir völlinn né iðkendur að æfa þar sem stendur. Bilunin er þess eðlis að dæla í borholu bilaði og smíða þurfti nýja dælu sem er væntanleg til landsins í lok febrúar. Mögulega verður völlurinn opnaður fyrr ef hlýnar í veðri og klaki fer af vellinum,“ segir Kjartan Páll Þórarinsson, Íþrótta- og tómstundafulltrúi Norðurþings í tilkynningu.
Lesa meira

Ásprent tekið til gjaldþrotaskipta

Hefur ekki áhrif á starfsemi Útgáfufélagsins
Lesa meira