Tónleikar Upptaktsins í Hofi á sunnudaginn
Flutt verða átta glæný lög eftir ungmenni á aldrinum 10-16 ára á tónleikum UPPTAKTSINS á sunnudaginn þann 27. apríl kl. 17 í Hofi.
Flutt verða átta glæný lög eftir ungmenni á aldrinum 10-16 ára á tónleikum Upptaktsins á sunnudaginn þann 27. apríl kl. 17 í Hofi. Greta Salóme og Kristján Edelstein útsettu lög ungmennanna fyrir hljómsveit og það eru atvinnuhljóðfæraleikarar sem flytja verk þeirra á stóra sviðinu í Hamraborg.
Ungmennin sjö hafa unnið með listafólkinu að útsetningu laga sinna og nú er uppskeruhátíð! Þar sem þau sitja út í sal og njóta afrakstursins ásamt gestum.
Verkin átta voru valin af dómnefnd úr fjölda umsókna, sem bárust í Upptaktinn í ár.
Ungtónskáld Upptaktsins 2025 eru:
Alex Parraguez Solar, 14 ára úr Naustaskóla - Sumargleði vetursins
Hákon Geir Snorrason, 11 ára úr Lundarskóla – Lifðu lífinu lifandi
Heimir Bjarni Steinþórsson, 14 ára úr Lundarskóla – Racket & To Thrive
Hjördís Emma Arnarsdóttir, 12 ára úr Þelamerkurskóla – Ljósadans
Hjörtur Logi Aronsson, 12 ára úr Brekkuskóla – Það sem er best
Ísólfur Raymond Matharel, 11 ára úr Brekkuskóla – Allegretto
Lára Rún Keel Kristjánsdóttir, 15 ára úr Þelamerkurskóla - Neðansjávarsól
Hljómsveitina skipa:
Emil Þorri Emilsson – slagverk og trommur
Greta Salóme – fiðla og söngur
Kristján Edelstein – gítar
Stefán Ingólfsson – bassi
Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir - selló
Þórður Sigurðarson – hljómborð og harmonika
Ágúst Brynjarsson – söngur lagsins Lifðu lífinu lifandi.
Útsetning verkanna fyrir hljómsveit: Kristján Edelstein og Greta Salóme.
Tónlistarstjóri: Greta Salóme.
Enginn aðganseyrir og allir eru hjartanlega velkomnir á tónleikana!
Upptakturinn í Hofi er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu, styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra.
Upptakturinn er þátttakandi í Barnamenningarhátíð á Akureyri.