KEA 1.430 milljóna króna hagnaður varð af rekstri á 2024

KEA 1.430 milljóna króna hagnaður varð af rekstri á 2024
KEA 1.430 milljóna króna hagnaður varð af rekstri á 2024

Á aðalfundi félagsins sem fram fór í gærkvöldi kom fram að 1.430 milljóna króna hagnaður varð af rekstri félagsins á síðasta ári. Hreinar fjárfestingatekjur voru 1.727 milljónir króna og hækkuðu um 670 milljónir króna á milli ára. Eigið fé var tæpir 11 milljarðar og heildareignir námu tæplega 11,2 milljarði króna. Eiginfjárhlutfall var rúmlega 98%.

Í samræmi við stefnu félagsins var eignasafn þess einfaldað á árinu, eignir seldar og verkefnum fækkað. Verulega var aukið við vægi fasteignatengdra verkefna þegar dótturfélag KEA keypti 119 íbúðir á Akureyri af Íveru fyrir 5 milljarða. Var það fyrsta skrefið í því að byggja upp íbúðafélag sem leigir út íbúðir á almennum markaði. Auk þess var fjárfest í stóru fasteignaþróunarverkefni við Viðjulund á Akureyri.

Á árinu voru seldir eignarhlutir í Slippnum Akureyri, Norðurböðum og Íslenskum verðbréfum. Aukið var við hlut félagsins í Ferro zink og á KEA nú allt hlutafé félagsins. Jafnframt var hlutur félagsins í Norlandair aukinn og er nú 45% og er KEA stærsti eigandi félagsins.

Heilt yfir gekk félögum sem KEA á eignarhluti í vel í sínum rekstri. Áfram verður unnið í því að einfalda eignasafnið og fækka en um leið stækka þau verkefni sem félagið hefur með höndum. Ný í aðalstjórn félagsins er Hafdís Erna Ásbjarnardóttir.

Nýjast