Dagskráin 22 janúar - 29 janúar Tbl 3
Skilgreina hlutverk SAk sem varasjúkrahús
Alma Möller, heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að vinna að nánari skilgreiningu og hlutverki varasjúkrahúss með tilliti til viðbragðsáætlana, neyðarviðbragða, þjóðaröryggisráðs, sjúkraflutninga, rannsóknarþjónustu og laga um heilbrigðisþjónustu.
Alma Möller, heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að vinna að nánari skilgreiningu og hlutverki varasjúkrahúss með tilliti til viðbragðsáætlana, neyðarviðbragða, þjóðaröryggisráðs, sjúkraflutninga, rannsóknarþjónustu og laga um heilbrigðisþjónustu. Í skipunarbréfi ráðherra kemur fram að mikilvægt sé að skýra hlutverk SAk sem varasjúkrahús þ.e. hvaða þjónustu þarf að veita og hvaða búnaður þarf að vera til staðar, einkum tengt bráðaþjónustu. Taka eigi mið af þjóðaröryggisstefnu, almannavarnarlögum og viðbragðsáætlunum, svo og mati á möguleikum Landspítala og annarra stofnana til að bregðast við ófyrirséðum aðstæðum.
„Skiptir miklu máli“
Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri SAk, mun taka sæti í starfshópnum. Hún segir það sannarlega fagnaðarefni að ráðherra hafi ákveðið að skipa starfshópinn „Það skiptir okkur ákaflega miklu máli að hlutverk SAk sem varasjúkrahús landsins sé skýrt, enda höfum við mikinn metnað til að sinna okkar hlutverki af fagmennsku og heilindum, til heilla fyrir þjóðina alla“ segir Hildigunnur að þessu tilefni.
Fulltrúar stofnana tilnefndir
Starfshópurinn er skipaður fulltrúum fjölmargra stofnana, formaður hópsins er Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, án tilnefningar. Auk Hildigunnar verða í starfshópnum þau sem tilnefnd eru af Landspítalanum, Sjúkratryggingum Íslands, Embætti landlæknis, Nýja Landspítalanum o.hf., Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra sem og fulltrúi sem skipaður er sameiginlega af Heilbrigðisstofnunum Austurlands, Vestfjarða og Norðurlands. Sérfræðingur frá heilbrigðisráðuneytinu verður starfsmaður hópsins. Sjá frétt Heilbrigðisráðuneytisins hér: Stjórnarráðið | Unnið að skilgreiningu á hlutverki SAk sem varasjúkrahúss
Frá þessu sagði fyrst á heimasíðu Sak