Eyfirsk söfn hringja inn sumarið

Listagilið á Akureyri. Mynd/Akureyri.is
Listagilið á Akureyri. Mynd/Akureyri.is

Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 24. apríl 2025 n.k. opna söfn og sýningar við Eyjafjörð dyr sínar fyrir gestum og gangandi. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Eyfirski safnadagurinn var fyrst haldinn árið 2007 og hefur verið haldinn árlega síðan, fyrir utan einn lítinn heimsfaraldur sem setti strik í reikninginn 2020.

Sumardaginn fyrsta opna um 13 söfn og sýningar við Eyjafjörð dyr sínar fyrir gestum og gangandi undir heitinu Eyfirski safnadagurinn. Markmiðið er að vekja athygli á fjölda fróðlegra og forvitnilegra safna sem eru við Eyjafjörð. ,,Enginn aðgangseyrir er að söfnunum á Eyfirska safnadeginum. Samræmdur opnunartími safnanna er frá 13.00 – 16.00 en sum eru með opið lengur. Mælum með að áhugasamir fylgist með opnunartímum og dagskrá á samfélagsmiðlum safnanna," segir í tilkynningunni.

Söfnin sem opna dyr sínar eru Hælið, Listasafnið á Akureyri, Flugsafnið, Minjasafnið, Nonnahús, Leikfangasafnið, Iðnaðarsafnið, Davíðshús, Smámunasafnið Mótorhjólasafnið, Hús Hákarlajörundar, Síldarminjasafnið, Flóra menningarhús í Sigurhæðum og margt fróðlegt og skemmtilegt verður í boði á söfnunum þennan daginn.

Nýjast