Völsungur og Landsbankinn endurnýja samstarfssamning

Völsungur og Landsbankinn á Húsavík hafa endurnýjað fyrri samstarfssamning og mun hann gilda til næstu tveggja ára. Samningurinn mun áfram fela í sér stuðning bankans við allar deildir félagsins. Landsbankinn hefur verið einn af aðalstyrktaraðilum Völsungs mörg undanfarin ár. Það voru Jónas Halldór Friðriksson framkvæmdastjóri Völsungs og Anna Sigríður Sigurgeirsdóttir þjónustustjóri á Húsavík sem undirrituðu samninginn.
Samkvæmt samningnum fá deildir félagsins árlega greiðslu eins og í fyrri samningum. Völsungur úthlutar fjármunum samkvæmt sínum áherslum og skal gæta jafnræðis í úthlutun þeirra fyrir karla- og kvennaflokka eins og kostur er. Landsbankinn og Völsungur munu vinna saman að vímuvarnarstefnu Völsungs og skal hluta af styrk bankans varið í námskeiðahald í vímuvörnum fyrir þjálfara og félagsmenn Völsungs.
„Samningurinn við Völsung er afar mikilvægur fyrir okkur og hefur verið stærsti einstaki styrktarsamningur útibúsins til margra ára. Völsungur er burðarás í æskulýðs- og íþróttastarfi bæjarins og því er mjög mikilvægt að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingarstarfi sem félagið beitir sér fyrir“ segir Anna Sigríður Sigurgeirsdóttir, þjónustustjóri Landsbankans á Húsavík.