20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Perluðu fyrir Rauða Krossinn
Vinkonurnar Karen, Aníta Ósk, Eva Sól og Þórunn Gunný eru handlagnar og duglegar að perla. Þær ákváðu að ganga í hús í Síðuhverfi og selja perl til styrktar Rauða krossinum.
Þær voru stoltar vinkonurnar sem komu og færðu Rauða krossinum afrakstur vinnunnar, 14.049 krónur. Rauði krossinn þakkar þeim kærlega fyrir þeirra framlag til mannúðarstarfs Rauða krossins.
Handverkið er hið eigulegasta