Ný kynslóð flottrollshlera í Vilhelm Þorsteinsson EA 11
Stýranlegir flottrollshlerar hafa verið teknir í notkun á Vilhelm Þorsteinssyni EA 11, uppsjávarskipi Samherja. Veiðarfæragerðin Vónin í Færeyjum smíðar hlerana og er þeim stýrt úr tölvukerfi skipsins í brúnni, sem þýðir að mögulegt er að hafa enn betri og nákvæmari stjórn á veiðarfærinu.
Vilhelm Þorsteinsson EA 11 er nú á kolmunnaveiðum við Færeyjar, þar sem nýju hlerunum er beitt í fyrsta sinn.
Skipstjórinn stýrir hlerunum úr brúnni
Sigurður Rögnvaldsson á útgerðarsviði Samherja segir um að ræða nýja kynslóð toghlera ,,Það eru nokkur skip komin með þessa hlera og útgerðirnar segja reynsluna góða, þannig að við ákváðum að uppfæra búnaðinn hjá okkur og innleiða þessa nýju tækni. Nú getur skipstjórinn hækkað eða lækkað veiðarfærið í sjónum, allt eftir því á hvaða dýpi fiskitorfurnar koma fram á leitartækjum í brúnni. Með gamla laginu þurfti meðal annars að stýra hlerunum með hraða skipsins, þannig að þetta er umtalsverður munur. Þessir hlerar heita Twister og eru þriðja kynslóð flottrollshlera frá færeysku veiðarfæragerðinni. Þróunin á veiðarfærum hefur verið ansi hröð á undanförnum árum og Færeyingar eru framarlega á þessu sviði.”

Markvissari veiðar og orkusparnaður
Sigurður segir að hlerarnir hafi staðist allar væntingar í fyrsta holi veiðiferðarinnar. Twister hlerarnir voru settir um borð í Færeyjum áður en haldið var á miðin.

,,Botnstykki var sett á skipið á Akureyri, sem er með ýmsan samskiptabúnað við hlerann. Það á auðvitað eftir að koma reynsla á þetta allt saman, en upphafið lofar sannarlega góðu. Í þessum hlerum er meðal annars stýribúnaður sem gengur fyrir endurhlaðalegum rafhlöðum, sem er stungið í hleðslu þegar þeir hafa verið hífðir um borð. Nýju hlerarnir gera veiðarnar markvissari og er meðal annars ætlað að draga úr olíunotkun, þannig að við bindum miklar vonir við þennan nýja búnað,” segir Sigurður Rögnvaldsson.
Frá þessu er sagt á www.samherji.is