Bjarg byggir 16 nýjar íbúðir við Langamóa á Akureyri

Mynd af bjargibudafelag.is
Mynd af bjargibudafelag.is

Bjarg íbúðafélag mun byggja 16 leiguíbúðir við Langamóa 1-3 í Móahverfi á Akureyri.  

Framkvæmdir hófust nú í apríl og er áætlað að íbúðirnar verði tilbúnar á tveimur mismunandi dagsetningum, júlí 2026 og nóvember 2026. Opnað verður fyrir umsóknir í október á þessu ári.

Verktaki er BF byggingar ehf.

Íbúðirnar eru í tveimur húsum sem eru tvær hæðir, auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu. Þar má finna 2ja til 4ra herbergja íbúðir. Gældýrahald er leyft í hluta íbúðanna.

Sjá nánar um íbúðirnar hér.

 

Frá þessu segir á  www.ein.is

Nýjast