Heimsfrægur barítón á Sumartónleikum
Næst elsta tónleikaröð landsins, Sumartónleikar í Akureyrarkirkju, fagnar 30 ára afmæli í sumar. Þrennir tónleikar hafa þegar farið fram þetta sumarið, en tónleikar eru alla sunnudaga í júlímánuði.
Aðsókn hefur verið frábær og tónleikagestir jafnt ferðamenn sem heimamenn en aðgangur er ókeypis að öllum tónleikunum.
Á fjórðu tónleikum sumarsins koma fram Andreas Schmidt, barítón, Inga Rós Ingólfsdóttir, sellóleikari og Hörður Áskelsson, organisti. Þau flytja kirkjulega tónlist, gamla og nýja, eftir tónskáldin Schutz, Bach, Dvorák, Mendelssohn, Sain Saens, Árna Thorsteinsson og frumflytja nýtt verk eftir akureyrska tónskáldið Jón Hlöðver Áskelsson. Verkið er sérstaklega samið fyrir tríóið og nefnist Sól ek sá.
Styrktaraðilar tónleikaraðarinnar eru Sóknarnefnd Akureyrarkirkju, Héraðssjóður Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis, Menningarsjóður Akureyrar og Tónlistarsjóður. Tónleikarnir eru hluti af Listasumri á Akureyri.
Hjónin Inga Rós og Hörður fóru til náms í Düsseldorf í Robert Schumann tónlistarháskólanum haustið 1976 þar sem þau kynntust Andreas Schmidt en hann og Hörður voru þá í framhaldsnámi í kirkjutónlistardeild. Hörður hélt áfram með kirkjutónlistina á meðan Andreas fór alfarið yfir í söng og lærði hjá Ingeborg Reichelt og Dietrich Fischer-Dieskau. Á námsárunum mynduðu þau tríó sem kom fram á tónleikum í Þýskalandi og á Íslandi, auk þess sem þau komu fram á tónleikum í sjónvarpssal íslenska sjónvarpsins. Mótettukór Hallgrímskirkju kom í fyrsta sinn fram á tónleikum þar sem Andreas Schmidt söng tvær einsöngskantötur eftir Bach 1982 í kapellunni í suðursal Hallgrímskirkju.
Inga Rós hefur leikið í Sinfóníuhljómsveit Íslands frá 1982 og var í áratugi félagi í Kammersveit Reykjavíkur. Inga Rós er framkvæmdastjóri Listvinafélags Hallgrímskirkju og Kirkjulistahátíðar.
Hörður Áskelsson er organisti og kantor Hallgrímskirkju, stjórnandi Mótettukórs Hallgrímskirkju og Schola cantorum og auk þess listrænn stjórnandi Listvinafélagsins og hátíðum á vegum þess.
Frumraun Andreasar Schmidt á óperusviðinu var sem Malatesta í óperunni Don Pasquale eftir Donizetti árið 1984. Hann hefur komið fram í flestum þekktustu óperuhúsum heims, La Scala, Covent Garden og á Metropolitan. Hann er einnig virtur óratóríu- og ljóðasöngvari. Hann kenndi við Carl Maria von Weber tónlistarskólann í Dresden frá 2005 og frá 2010 við Hochshule für Musik und Theater München.