Göngum saman, fagnar 10 ára afmæli

Frá göngunni árið 2015 á Akureyri. Myndin var fengin af vef Göngum saman.
Frá göngunni árið 2015 á Akureyri. Myndin var fengin af vef Göngum saman.

Göngum saman fagnar nú tíu ára afmæli. Allt frá stofnun hefur félagið verið öflugur bakhjarl íslenskra grunnrannsókna á brjóstakrabbameini með því að styrkja vísindamenn um verulegar fjárhæðir eða alls rúmlega 70 milljónir króna. Jafnframt hefur verið unnið að því að byggja upp vísindasjóð og á afmælisárinu og verður sérstök áhersla lögð á hann.

Markmið félagsins er að að styrkja rannsóknir á eðli og orsökum brjóstakrabbameins og taka þannig þátt í að efla forvarnir og bæta meðferð þeirra sem greinast með sjúkdóminn. Göngum saman er alfarið rekið af vinnu sjálfboðaliða og styrkjum frá fyrirtækjum og einstaklingum.

Á mæðradaginn, 14. maí nk.,  fer fram  árleg styrktarganga félagsins og er hún og viðburðir henni tengdir  einn mikilvægasti þátturinn í fjáröfluninni.  Gengið er víða um land og á síðastliðnu ári tóku vel á annað þúsund manns þátt í göngunni. Á Akureyri verður gengið af stað frá Lystigarðinum kl. 11. Fyrir og eftir göngu verður varningur félagsins til sölu og rennur allur ágóði til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini.

Nýjast