Grenivík-Vel gert hjá Óla Gunnari
Heimilismenn á Grenilundi hafa að undanförnu tekið þátt í hjólakeppninni Pedal On Road Worlds For Seniors. Keppnin stóð yfir frá 7. október til 1. nóvember.
Keppnin er norsk að uppruna og þátttakendur geta ferðast um allan heim á meðan þeir hjóla þ.e. horft á myndbönd hvaðanæva að segir á vefsíðu Grýtubakkahrepps. Þessi keppni er hvetjandi en annars eru heimilsmenn á Grenilundi almennt duglegir að hjóla um heiminn.
Keppendur fengu á dögunum afhenta verðlaunapening fyrir þátttöku sína en einn var sá keppandi frá Grenilundi sem sýndi verulega góð tilþrif, hann Óli Gunnar sem 499 km meðan á keppni stóð eða um það bil 21 kílómetra á dag að meðaltali.