Klúbbar styrkja Frú Ragnheiði

Mynd af facebooksíðu Rauða krossins í Eyjafirði
Mynd af facebooksíðu Rauða krossins í Eyjafirði

Klúbbarnir Ladies Circle 7 og Round Table 15 afhentu Frú Ragnheiði rausnarlegar styrk í vikunni, ómetnalegur styrkur . „Við erum svo innilega þakklát og mun þetta nýtast skjólstæðingum okkar vel segir í tilkynningu, en styrkurinn er að upphæð um 630 þúsund krónur.

Frú Ragnheiður er skaðaminnkandi verkefni á vegum Rauða krossins á Akureyri. Tilgangur verkefnisins er að ná til jaðarsettra einstaklinga sem nota vímuefni í æð og bjóða þeim nálaskiptaþjónustu, grunn heilbrigðisþjónustu, fræðslu á jafningjagrundvelli, fatnað, næringu og sálrænan stuðning.

Nýjast