13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Fagnað í Grímsey í dag
Fiske-afmælinu er fagnað í Grímsey í dag. Þessi dagur er ávallt stór hátíðarstund og mikilvægur í huga íbúa eyjarinnar. Að vanda munu íbúar fagna deginum með samkomu í félagsheimilinu Múla. Boðið verður upp á girnilegt kvöldverðarhlaðborð kl. 18.00 og skemmtun í framhaldinu. Búist er við að um 30 gestum.
tilefni af afmælinu var haldin messa í nýju Miðgarðakirkjunni í gær. Oddur Bjarni Þorkelsson, sóknarprestur í Dalvíkurprestakalli, sá um guðþjónustuna og lék Þórður Sigurðarson undir á harmonikku. Allir sem voru staddir í eyjunni mættu. Vinna við smíði kirkjunnar gengur vel. Hún er að verða tilbúin að utan og stendur til að klára hana að innan í vetur.
Fiskehátíð er haldin í Grímsey 11. nóvember á hverju ári til að minnast afmælis Daniels Willard Fiske (1831-1904) sem var velgjörðmaður samfélagsins en steig þó aldrei fæti sínum á land í Grímsey. Hann var bandarískur prófessor við Cornell háskóla í New York fylki í Bandaríkjunum. Hann lærði íslensku þegar hann var í námi í Danmörku 1849 og safnaði öllu íslensku efni sem til var á prenti auk ljósmynda af Íslandi. Stórt safn íslenskra bóka og ljósmynda er nú varðveitt í Cornell. Fiske sigldi hringinn í kringum landið 1879 og sá þá Grímsey tilsýndar og heillaðist af dugnaði og menningaráhuga íbúanna. Grímseyingar voru góðir skákmenn og þar sem Fiske var mikill áhugamaður um skák komst hann í bréfasamband við tvo menn í Grímsey. Þar með hófst vináttusamband hans við Grímseyinga sem varði meðan hann lifði. Árið 1901 færði Fiske Grímseyingum stórt bókasafn sem hann nefndi Eyjarbókasafnið. Það er nú varðveitt í félagsheimilinu í upprunalegum bókaskápum.
Í erfðaskrá sinni ánafnaði hann Grímseyingum veglegan peningasjóð, Grímseyjarsjóð Willard Fiske, til að endurbæta húsakostinn og bæta mannlíf í eyjunni og í þakklætisskyni voru nokkrir drengir í Grímsey skírðir eftir honum. Í eyjunni er minnismerki um Fiske er eftir Gunnar Árnason myndhöggvara og var gefið af Kiwanisklúbbnum Grími. Það var afhjúpað þann 11. nóvember 1998.
akureyri.is sagði fyrst frá