AtNorth stækkar gagnaver sitt á Akureyri Glatvarmi nýttur til matvælaframleiðslu
Fyrirtækið atNorth vinnur að stækkun gagnavers síns á Akureyri. Einnig hefur félagið kynnt nýtt samstarf um endurheimt og nýtingu varma. Stækkun tveggja gagnavera atnorth, á Akureyri og í Reykjanesbæ er þegar hafin.
Heildarfjárfesting atNorth vegna stækkunarinnar nemur 41,2 milljörðum króna, en við bætist fjárfesting viðskiptavina fyrirtækisins í tölvubúnaði sem nemur nálægt 300 milljörðum króna. Stækkunin kemur til vegna aukinnar eftirspurnar eftir þjónustu gagnavera atNorth frá bæði alþjóðlegum og innlendum viðskiptavinum segir í tilkynningu frá félaginu.
Um er að ræða umfangsmestu stækkun sem íslenskt gagnaver hefur ráðist og innifelur umtalsvart magn af hátæknibúnaði. Leigja þurfti sérhæft flutningaskip til að flytja hluta búnaðarins og kallaður var til stærsti krani landsins til að hífa búnaðinn inn á lóð gagnaversins.
Lóð á vogarskál hringrásarhagkerfisins
Félagið atNorth hefur gengið til samstarfs við Hringvarma um heimt glatvarma frá gagnaverunum til að nota í matvælaframleiðslu. Hringvarmi kemur til með að setja upp frumgerð búnaðar síns upp í gagnaverinu á Akureyri og nota hitann þaðan til að rækta grænspírur í samstarfi við Rækta Microfarm.
„Okkur er mikil ánægja að vera með í vistkerfi hátæknigagnavera atNorth. Markmið samstarfsins er að efla íslenskan landbúnað og draga úr þörf fyrir innfluttar vörur um leið og við leggjum lóð á vogarskál hringrásarhagkerfisins á Íslandi,“ segir Justine Vanhalst, meðstofnandi Hringvarma í tilkynningunni.
Þekking og mannauður til staðar
„Með stækkun gagnaveranna mætum við aukinni eftirspurn eftir þjónustu atNorth bæði frá erlendum of innlendum viðskiptavinum, en stækkunin er í samræmi við sjálfbæra vaxtarstefnu atNorth og byggir á fyrirliggjandi byggingarleyfum og samningum um orkukaup. Á Akureyri og í Reykjanesbæ er til staðar mikil þekking, mannauður og traust fyrirtæki sem geta veitt atNorth góða þjónustu við rekstur og viðhald á tæknibúnaði í gagnaverum fyrirtækisins,“ er haft eftir Eyjólfi Magnúsi Kristinssyni forstjóra atNorth