Dagskráin 22 janúar - 29 janúar Tbl 3
Akureyri - Tjaldsvæðisreitur drög að breytingu á deiliskipulagi
Á vefsíðu bæjarins eru í dag kynnt drög að deiliskipulagi fyrir tjaldsvæðisreitinn við Þórunnarstræti. Eins og kunnugt er var svæðinu lokað fyrir tjaldgesti og til stóð má. að byggja heilsugæslustöð nyrst á þessari lóð. Frá þeirri hugmynd var svo fallið og nú hefur verið samþykkt að þar skuli rísa fjölbreytt íbúðabyggð og er áhersla lögð á að þarna rísi ,,sjálfbært og nútimalegt hverfi sem falli vel að núverandi byggð og umhverfi".
Á svæðinu er gert ráð fyrir þéttri en lágreistri 3-4 ½ hæða byggð, auk kjallara. Gert er ráð fyrir blöndun á svæðinu s.s. verslun og þjónustu og vistlegum íbúðum, fjöldi íbúða á reitnum er um 190. Ekki er gert ráð fyrir götum innan reitsins hins vegar er gert ráð fyrir akfærum stígum
fyrir neyðar- og/eða þjónustubíla innan hans
Nákvæma greinargerð um skipulagið má lesa hér
Helstu áhersluatriði í nýju skipulagi eru eftirfarandi:
- blönduð byggð
- íbúðir fyrir 60 ára og eldri
- þétt og lágreist byggð með bílakjallara
- fjölbreytt rými
- græn svæði sem stuðla að betri lífsgæðum íbúa
Skipulagsferlið hefur staðið yfir í nokkur ár og er unnið í nánu samstarfi við íbúa, hagsmunaaðila og sérfræðinga. Á kynningarfundum og í gegnum samráðsvettvanginn „Okkar Akureyri“ hafa borist fjölmargar ábendingar og tillögur sem hafa mótað lokatillöguna.
Deiliskipulagsuppdrátt sem sýnir breytinguna má nálgast hér og skuggavarpið má sjá hér
Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér breytinguna og senda inn ábendingar þar sem fram kemur nafn og kennitala í gegnum Skipulagsgátt.
Frestur til að koma ábendingum á framfæri er veittur til 27. febrúar 2025.
Horft í átt að Þórunnarstræti til austurs. Sérnotareitur í forgrunn, torg og lifandi jarðhæð meðfram Þórunnarstræti. Núverandi byggð meðfram Byggðavegi sést í bakgrunn