100 ár liðin frá stofnfundi Akureyrardeildar Rauða krossins
„Við erum afskaplega stolt af deildinni okkar og þá sérstaklega hve margir sjálfboðaliðar starfa fyrir hana því þau verkefni sem við sinnum byggjast fyrst og fremst á sjálfboðaliðastarfi,“ segir Ingibjörg Halldórsdóttir deildarstjóri Eyjafjarðardeildar Rauða krossins. 100 ára voru í gær liðin frá stofnfundi Akureyrardeildar Rauða krossins á Íslandi.
Deildin var fyrsta Rauða kross deildin sem stofnuð var á landinu og hefur frá upphafi verið ein sú öflugasta. Til marks um það höfðu 75 manns skráð sig í deildina áður en stofnfundurinn fór fram en yfir 100 manns gengu í hana á stofndeginum.
Árið 2013 sameinuðust Akureyrar-, Dalvíkur, Ólafsfjarðar- og Siglufjarðardeildir og hlaut sameinuð deild heitið Rauði krossinn við Eyjafjörð. Nú starfa yfir 300 sjálfboðaliðar í 16 fjölbreyttum verkefnum deildarinnar og Ingibjörg segir að alltaf bætist í hópinn, „svo það er ljóst að í samfélaginu er mikill áhugi fyrir að láta gott af sér leiða.“
Vinnuframlag sjálfboðaliðanna ómetanlegt
Vegna þess hve deildin er fjölmenn er möguleiki á að halda úti virku starfi í næstum öllum þeim sjálfboðaliðaverkefnum sem Rauði krossinn býður upp á á landsvísu. Það er því auðvelt fyrir hvern og einn að finna verkefni eftir áhuga og getu. „Það eru sjálfboðaliðarnir sem halda starfinu úti, enda er sjálfboðin þjónusta eitt af grunngildum okkar og það er sá mannauður sem gerir okkur kleift að halda úti svona öflugu starfi hér á svæðinu," segir Ingibjörg. „Við erum með sjálfboðaliða sem sinna mannúðarstarfi meðfram atvinnu, fjölskyldulífi og öðru því sem hið daglega líf felur í sér og svo erum við líka með sjálfboðaliða sem hafa rýmri tíma og sinna jafnvel mörgum hlutverkum hjá okkur og bera mikla ábyrgð. Allt eru þetta ómetanleg framlög til að bæta samfélagið og sinna þeim sem þurfa aðstoð á ýmsan hátt.“
Fulltrúar sem sóttu neyðarvarnarþing árið 2023.
Fjölbreytt starfsemi
Næstum öll verkefni Rauða krossins á Íslandi eru starfrækt á starfssvæði Eyjafjarðardeildar „Við erum með sjálfboðaliða sem svara í Hjálparsímann 1717, sinna aðstoð eftir afplánun, aðstoða fólk sem notar vímuefni í æð í Frú Ragnheiði, sinna sálrænum stuðningi þegar áföll dynja yfir og eru tilbúin til að halda úti fjöldahjálparstöðvum þegar á þarf að halda, heimsækja fólk sem býr við einangrun, aðstoða flóttafólk og innflytjendur við að læra íslensku og aðlagast aðstæðum, sinna flokkun og afgreiðslu á fatnaði sem berst til okkar og svo mætti lengi telja,“ segir Ingibjörg.
Blásið er til veislu í húsakynnum Rauða krossins við Viðjulund 2 á Akureyri í dag frá kl 15 þar býðst gestum og gangandi færi á að kynnast starfseminni og fjölbreyttum verkefnum deildarinnar.
Torgsala Rauða krossins, frá vinstri eru Ragna, Þórey, Dísa og Gugga.
Fyrsta Rauða kross deildin á landinu
Akureyringarnir Steingrímur Matthíasson héraðslæknir á Akureyri og Þorbjörg Ásmundsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur áttu, ásamt Sveini Björnssyni, síðar forseta, frumkvæði að stofnun Rauða krossins á Íslandi. Þau Steingrímur og Þorbjörg höfðu hugsjón fyrir að efla hjúkrun og styðja við heilbrigðiskerfið í landinu. Að málaleitan Steingríms kom Frantz Svendsen, þáverandi formaður Rauða kross Danmerkur, til Íslands og kynnti starfsemi Rauða krossins bæði í Reykjavík og á Akureyri. Rauði kross Íslands var svo stofnaður í Reykjavík 10. desember 1924 og var fyrsti formaður félagsins Sveinn Björnsson.