Fyrsti heimaleikur!

Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þór/KA     Mynd  Thorsport
Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þór/KA Mynd Thorsport

Jóhann Kristinn Gunnarsson skrifar

Þá er boltinn byrjaður að rúlla hjá stelpunum okkar í Þór/KA. Eftir flott undirbúningstímabil þar sem stelpurnar lögðu mikið á sig til að vera sem best undirbúnar fyrir tímabilið hófum við leik í Garðabænum á miðvikudaginn. Sterk byrjun í slyddunni og frábær úrslit hjá liðinu. Það er alltaf gott að byrja tímabilið á sigri.

Nú er komið að fyrsta heimaleiknum á tímabilinu þegar Keflavík kemur í heimsókn á Greifavöllinn á mánudaginn 1. maí kl.16:00.

Ég gæti skrifað mjög langan pistil um stelpurnar okkar og hvernig þær hafa vaxið og dafnað sem einstaklingar og ekki síst sem lið. Það er góður andi í hópnum og þær eru staðráðnar að ná þeim markmiðum sem þær hafa sett sér. Ég hef fulla trú á að þær nái þeim. Látum samt hróspistilinn bíða betri tíma. Við ætlum nefnilega að halda okkur á jörðinni fyrir næsta leik.

Eitt af markmiðum okkar í Þór/KA er að auka jákvæðni, bjartsýni og stemninguna í kringum liðið okkar. Fá fleiri á völlinn og efla stuðninginn við stelpurnar. Við vitum að það hjálpar þegar vel gengur og liðið spilar vel og ekki skemmir ef þær spila skemmtilegan fótbolta.

Nú vil ég skora á allt áhugafólk um fótbolta til að fjölmenna á völlinn á mánudaginn og styðja þannig við bakið á stelpunum. Mér finnst þær eiga það skilið. Svo er ég alveg viss um að þetta verður bara fínasta skemmtun í leiðinni. Frídagur, borgarar á grillinu og ungt og spennandi lið sem ætlar sér að gera góða hluti í sumar.

Sjáumst á vellinum.

Áfram Þór/KA!

Jóhann Kristinn Gunnarsson

Þjálfari Þórs/KA

Nýjast