Skátaskálanum Gamla læst

Gamli hefur verið opinn gestum og gangandi en nú verður breyting á.
Gamli hefur verið opinn gestum og gangandi en nú verður breyting á.

Gamli er útileguskáli ofan Löngukletta. Skálinn var byggður árið 1980 og er í eigu Skátafélagsins Klakks. Skálinn er fyrst og fremst ætlaður rekka- og róverskátum, sem eru skátar á aldrinum 16-25 ára.

Skálinn hefur staðið ólæstur frá upphafi, bæði sem ákveðið öryggistæki, og eins svo gestir og gangandi geti skrifað í gestabók skálans.

Nú hinsvegar verða smá breytingar þar á, Skátafélagið hefur ákveðið að læsa húsinu, bæði vegna aukinnar umferðar gesta, sem gerir það að verkum að erfitt er að fara í útilegur, þegar gestir koma inn í skálann reglulega til að skrifa í gestabókina, jafnvel um miðja nótt, eins og ein skátasveit lenti í síðast þegar gist var í skálanum, að þau voru vakin tvisvar sömu nótt af fólki sem kom inn til að skrifa í gestabók.

Einnig hefur borið á slæmri umgengni í og við húsið, því miður er allt of algengt að rusl sé skilið eftir inni í húsinu, húsbúnaður skemmdur, og jafnvel að gist sé í skálanum án vitneskju eða samþykkis skátafélagsins.

Nú verður skálanum læst, en gestabók sett í kassa utan á húsinu, svo enn sé hægt að kvitta fyrir komu. Fyrirspurnir vegna skálans má senda á netfangið gamli@klakkur.is

Þetta segir í tilkynningu frá Skátafélaginu.,

Úr vettvangsferð Vikublaðsins  í Gamla


Athugasemdir

Nýjast