Rútuslysið-Flogið með fimm manns til Reykjavikur, vegurinn lokaður fram á nótt.

Meðfylgjandi er yfirlitsmynd af vettvangi úr dróna lögreglunnar.
Meðfylgjandi er yfirlitsmynd af vettvangi úr dróna lögreglunnar.

Lögreglan á Norðurlandi eystra sendi þessa tilkynninu frá sér fyrir skömmu vegna alvarlegs rútuslys sem varð laust eftir kl 17 í dag í Öxnadal.  ,,Áfram viljum við vekja athygli á því að vegurinn um Öxnadal er enn lokaður og verður fram eftir nóttu.

Eins og fram hefur komið þá var þarna hópur erlendra ferðamanna á ferð á rútu með erlendu skráningarnúmeri. Áfram er verið að vinna á vettvangi og þá er einnig komið á samband við erlendu ferðaskrifstofuna sem heldur utan um þessa ferð.

Flutningur er hafinn á slösuðum með sjúkraflugi og þyrlu LHG til Reykjavíkur. Nú þegar hafa 5 aðilar verið fluttir þangað og munu fleiri líklega verða fluttir suður síðar í kvöld eða nótt. Þá opnaði RKÍ fjöldahjálparstöð á Akureyri fyrir þolendur slyssins sem útskrifaðir hafa verið af Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Í þessu verkefni var Aðgerðastjórn á Akureyri virkjuð með fullri áhöfn sem og Samhæfingamiðstöðin í Reykjavík. Fulltrúar allra viðbragðsaðila á svæðinu komu að þessu, áhöfn Samhæfingamiðstöðvarinnar, Landhelgisgæslan og Landsspítalinn.

 Viljum við þakka öllum sem komu að verkefni þessu sem var mjög krefjandi og mikil áskorun.”

 

Nýjast