Athafnasvæði ÚA við Fiskitanga á Akureyri / myndir samherji.is
Rekstrarhagnaður Samherja hf. nam 8,1 milljarði króna á árinu 2023 og var nær óbreyttur frá árinu á undan þegar miðað er við uppgjörsmynt félagsins. Hagnaður af rekstri samstæðu Samherja hf., þegar tekið hefur verið tillit til afkomu hlutdeildarfélaga og fjármagnsliða, nam 8,8 milljörðum króna eftir skatta.
Þetta er á meðal þess sem kemur fram í ársreikningi Samherja hf. fyrir árið 2023 sem lagður var fram og samþykktur á aðalfundi félagsins hinn 11. júní síðastliðinn.
Talsverðar breytingar hafa verið gerðar á efnahagsreikningi Samherja hf. á undanförnum árum og var 2023 fyrsta heila rekstrarárið þar sem starfsemi samstæðunnar spannar einungis veiðar, vinnslu, landeldi og sölu sjávarafurða.
Lykiltölur úr uppgjörinu – launagreiðslur samtals 9,4 milljarðar króna
Á árinu 2023 seldi Samherji afurðir fyrir 62,5 milljarða króna og jukust sölutekjur vegna afurða um 10% frá árinu á undan. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 11,1 milljörðum króna og jókst um 6,7% frá árinu á undan í uppgjörsmynt félagsins. Tekjur af áhrifum hlutdeildarfélaga námu rúmlega 3 milljörðum króna. Tekjur vegna hlutdeildarfélaga lækka milli ára sem skýrist af tekjufærslu á árinu 2022 vegna breytinga á eignarhlutum í hlutdeildarfélögum það ár.
Miklar framkvæmdir hafa verið í gangi í Hörgársveit undanfarin misseri sem miða að því að styrkja innviði sveitarfélags þar sem íbúafjölgun hefur verið mikil hin síðari ár. Gagngerar endurbætur standa yfir á gamla heimavistarhúsnæði Þelamerkurskóla og var nú við upphaf skólaárs tekið í notkun nýtt rými þar fyrir unglingadeild skólans. Áður eða í fyrrahaust var enn ein nýja byggingin tekin í notkun við Heilsuleikskólann Álfastein. Þar var horft til framtíðar, pláss er fyrir 90 börn en þau eru kringum 70 um þessar mundir. Stærstu vinnustaðir sveitarfélagsins eru í leik- og grunnskólanum, en þar eru starfsmenn nú samtals 51. Í Hörgársveit búa nú 866 íbúar og er að því stefnt að þeir verði 1001 í það minnsta um mitt ár 2026.
Leitað verður eftir nýjum ferlibíl fyrir Strætisvagna Akureyrar sem gengur fyrir dísel orkjugjafa og uppfyllir að lágmarki Euro 6 mengunarstaðal. Ekki fundust aðrir umhverfisvænni kostir segir í bókun umhverfis- og mannvirkjaráðs.
Nú má finna fataskiptislá framan við bókasafn Menntaskólans á Akureyri. Fólki er frjálst að koma með fatnað og/eða taka af sláni eftir því hvað hentar hverju sinni. Í tilkynningu frá umhverfisnefnd skólas segir að textíliðnaðurinn sé einn sá umfangsmesti í heimi og að honum fylgi gríðarleg mengun og umhverfisspjöll.
Í dag var merkilegur áfangi í sögu Þingeyjarsveitar þegar nýtt stjórnsýsluhús á Laugum var formlega tilbúið. Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri fékk lyklana afhenta við óformlega athöfn í haust blíðunni. Húsið mun hýsa skrifstofu sveitarfélagsins og þar verða einnig rými sem fyrirtæki, stofnanir og einyrkjar geta nýtt sér. Vonast er til þess að húsið verði iðandi af lífi, suðupottur hugmynda og verkefna þar sem allir eru velkomnir
Ekki verður innheimt gjald fyrir þjónustu mötuneytis Grenivíkurskóla við nemendur skólans fá og með haustinu 2024. Allur matur sem börnin fá í skólanum, morgunmatur, hádegisverður, ávextir eða annað er gjaldfrjáls. Áður var innheimt eitt gjald fyrir allan mat.
Sláturtíð hófst hjá Kjarnafæði Norðlenska á Húsavík í fyrradag. Áætlað er að hún standi yfir til loka október, ljúki 31. þess mánaðar og á þeim tíma er gert ráð fyrir að slátra á bilinu 87.500 til 88.000 fjár.
Lögreglan á Norðurlandi eystra segir á Facebooksíðu embættisins frá illviðri á Mývatnsöræfum og er færslan svohljóðandi:
,,Lögreglunni á Norðurlandi Eystra voru að berast upplýsingar um mjög slæmt verður á Mývatnsöræfum. Sandstormur og ofsarok. Malbik er að flettast af veginum vestan við Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði.
Ökumenn hafa leitað vars með bíla sína á aðeins skjólsælli stöðum. Lögreglumenn sem fóru um svæðið fyrir skammri stundu óskuðu þess að vegfarendur yrðu upplýstir með þessar aðstæður ef nokkur kostur væri.
Vegagerðin er einnig að setja inn viðvörun um hættulegar aðstæður á veginum vegna veðurs, á sinn vef í þessum töluðu orðum. Látið endilega vini og kunningja vita ef þið vitið af ferðum fólks þarna efra.
Bíðið af ykkur veðrið og fylgist með veðurspá og færð.”
Það er óhætt að segja sem svo að það blási ansi hressilega hér i bæ enda hefur samkvæmt mælum Veðurstofu Íslands vindhraðinn slegið í 27 metra hér í kviðum og þó aðeins hafi lægt s.l. klukkustundina eru enn 10 metrar á klst og fer i 20 metra í kviðum.
Athugasemdir