Oddvitar í Norðausturkjördæmi mætast í beinni útsendingu
Oddvitar framboðanna til Alþingis mætast í kvöld í beinni útsendingu á RÚV og vef Vikublaðsins . Rætt verður um áherslumál framboðanna í kjördæminu.
Útsending hefst klukkan 18:10 og gert er ráð fyrir að fundurinn standi í um tvo tíma. Þættinum verður streymt á vikubladid.is en einnig má horfa á hann á RÚV2, ruv.is vef Austufréttar og hlusta á Rás 2.
Sent er út frá Hofi.
Umsjónarmenn eru Freyr Gígja Gunnarsson og Ólöf Rún Erlendsdóttir, fréttamenn RÚV.