Lét ofbeldið ekki stjórna lífi sínu
Ingibjörg Hanna Jónsdóttir, oftast kölluð Inda er forstöðuljósmóðir á Sjúkrahúsinu á Akureyri en hún hefur starfað í faginu í 35 ár. Hún segir starfið gefandi en það geti vissulega verið erfitt. Í frístundum finnst Indu ekkert betra en útivist í góðra vina hópi og heldur sér í formi með allskyns sporti.
Inda varð fyrir skelfilegri árás fyrir um 25 árum þegar maður ruddist inn á heimili hennar og braut gróflega á henni en hjálp fjöskyldu og vina tókst að vinna sig út úr erfiðleikunum.
Vikudagur heimsótti Indu og spjallaði við hana um ljósmæðrastarfið, hreyfinguna sem er henni nauðsynleg, ömmuhlutverkið og hvernig henni tókst að vinna sig úr ofbeldinu. Viðtalið má nálgast í prentútgáfu blaðsins.