Kvikmyndir í Verksmiðjunni á Hjalteyri

Jonathan Rescigno sýnir kvikmynd sína Strike or Die/Grève ou Crève í Verksmiðjunni á Hjalteyri á morgun, 10. ágúst klukkan 17:00 og segir frá henni á eftir. Qassim, ein aðalpersóna myndarinnar verður einnig viðstaddur. Strike or Die var frumsýnd á Berlinalnum 2020. Jonathan sýnir einnig stuttmyndina Destination Moon og vídeóverkið 469 frá 20

Ágrip:

Í heimabæ sínum, fyrrum iðnaðarsvæði í Lorraine, fylgir Jonathan Rescigno eftir nokkrum einstaklingum og tengir lauslega sögur þeirra. Tveir vinir, synir arabískra innflytjenda, eyða tíma sínum í rólegheitum á bæjarviðburðum og diskótekum. Maður nokkur gefur námusafninu reykhandsprengjur og hjálma, til minningar um verkföll námuverkamanna á níunda og tíunda áratugnum. Eldri þjálfari vinnur með ungum hnefaleikamönnum og þjálfar þá fyrir bardaga. Gögn af skjalasafni sem sýna stigmögnuð námuverkföll skilur að þessa frásagnarþræði. Smátt og smátt sjást tengsl á milli einstakra sagna og spurningar myndast sem snúa að kjarabaráttu, samstöðu og breyttri merkingu þessara þátta í nútímanum. Þokuský sigla í gegnum myndina, aftur og aftur: yfir heimili verkamanna, í gegnum safnið, framhjá þáverandi höfuðstöðvum námunnar. Er baráttunni lokið eða kraumar enn í henni? Eða er að safnast upp í eitthvað alveg nýtt?

Jonathan Rescigno fæddist árið 1980 í Forbach, Moselle en það er umdæmi í Frakklandi sem einkennist af miklu félagslegu umróti og róstusömum landamærum. Þættir sem eru undirbygging verka hans.Eftir menntun sína í myndlist og kvikmyndagerð í Metz og í Strassborg hóf hann feril sinn með gerð stuttmynda og vídeó-innsetningum.

Franska sendiráðið styrkir komu kvikmyndagerðarmannsins

Sýningin  Rúlletta; Rúlluterta er á sama tíma opin í Verksmiðjunni

Nýjast