Húfur gegn einelti í Oddeyrarskóla

Dugnaðarkonur, þær Linda Óladóttir, Kristín Jóhannesdóttir, Bára Árný Sigþórsdóttir og Hafdís Bjarna…
Dugnaðarkonur, þær Linda Óladóttir, Kristín Jóhannesdóttir, Bára Árný Sigþórsdóttir og Hafdís Bjarnadóttir í Oddeyrarskóla. Þær prjónuðu húfur með áletruninni Gegn einelti og afhentu þær nemendum 1. bekkjar skólans á alþjóðlegum degi gegn einelti sem er í dag, 8. nóvember. Þær hófu að skipuleggja prjónaskapinn í liðnum mánuði, brettu svo upp ermar og prjónuðu í gríð og erg þar til allir nemendur höfðu fengið húfu á sitt höfuð.

Dugnaðarprjónakonur í Oddeyrarskóla

 

Húfur gegn einelti á alla fyrstubekkinga

 

„Hver og ein húfa er með sínu móti, þær eru ólíkar, í mismunandi litum og með ólík mynstur til marks um að við erum öll ólík, hver og einn er einstakur,“ segir Kristín Jóhannesdóttir skólastjóri í Oddeyrarskóla.

Baráttudagur gegn einelti var í gær, 8. nóvember og af því tilefni voru allir nemendur skólans kallaðir a sal þar sem vinalag Oddeyrarskóla var sungið og allir fóru með möntru gegn einelti.  Hún hljóðar svo: Ég virði ólíka einstaklinga, ég sýni ábyrgð, virðingu og vináttu og ég legg ekki í einelti.

 

Annað árið sem prjónað er á alla í 1. bekk

 

Kristín segir þetta annað árið í röð sem börnum í fyrsta bekk ef gefin húfa á þessum alþjóðadegi gegn einelti. Hugmyndin sé fengin að láni frá Grunnskólanum í Bolungarvík sem einnig deildi uppskriftum af húfum með kollegum sínum nyðra.  Á öllum húfunum stendur: Gegn einelti.

Við athöfn á sal Oddeyrarskóla í gærmorgun fengu nemendur einnig afhent armbönd frá skólanum, en þau hafa eldri nemendur þegar fengið. Einkunnarorð skólans; Ábyrgð, virðing, vinátta er letruð á armböndin sem og staðhæfingin „Ég legg ekki í einelti.“

Kristín segir að nemendur séu hvattir til að bera armböndin til að minna sig og aðra á að temja sér falleg og góð samskipti.

 

 

Nýjast