„Hér er gleðin og fróðleiksþorsti í öndvegi“

Aðsókn að skólanum hefur aldrei verið meira en nú í sumar. Myndir frá Vísindafólki unga fólksins.
Aðsókn að skólanum hefur aldrei verið meira en nú í sumar. Myndir frá Vísindafólki unga fólksins.

Vísindaskóli unga fólksins var haldinn í tíunda sinn á þessu sumri. Aðsóknin var meiri en nokkru sinni fyrr. Síðasta embættisverk Eyjólfs Guðmundssonar rektors HA var að útskrifa 85 nemendur skólans. Hann kveður nú eftir tvö ráðningartímabil. Í Vísindaskólanum kynnast nemendur ýmsum fræðum og þemu skólans taka mið af því sem er að gerjast í samfélaginu hverju sinni.

Vísindaskólinn

Ungt fólk á aldrinum 11 til 13 ára getur skráð sig í Vísindaskóla unga fólksins og er algengt að börnin noti tækifærið til þess að skrá sig þrjú ár í röð, enda eru alltaf ný þemu í boði. Í auglýsingu um skólann segir að þetta sé vika fróðleiks og skemmtunar.

Sigrún Stefánsdóttir sem hefur verið skólastjóri frá upphafi segir að til þess að standa undir þessum fyrirheitum séu kennarar handvaldir til kennslunnar. „Hér er gleðin og fróðleiksþorsti í öndvegi. Við viljum að nemendur læri eitthvað nýtt og ferskt, sem þeir geta síðan miðlað áfram þegar þeir koma í sitt hefðbundna nám í haust,“ segir Sigrún.

Fimm ólík þemu

Vísindaskóli unga fólksins býður alltaf upp á fimm ólík þemu og skólinn er frá klukkan níu að morgni og fram til klukkan þrjú í fimm daga. Í ár eru þemun þessi: Forritun og gervigreind, Svefn, næring og æfing, Hvernig tengjast jarðskjálftar eldgosum? Fiskur undir steini og Glitrandi stjörnur, veður og vindar. Reynsla undanfarinna ára sýnir að skólinn dregur drengi ekki síður en stúlkur í þessa lærdómsviku. Sum ár hafa drengir verið í meirihluta nemenda sem er mikilvægt í ljósi hás brottfalls drengja úr formlegu námi.

Vísindaskólinn


Athugasemdir

Nýjast