20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Grenivíkurgleði 2024!
Grenivíkurgleðin árlega er viku fyrr á ferðinni en áður og verður haldin nú um helgina, 9. - 10. ágúst. Meiningin er að endurvekja grillstemmninguna sem einkenndi gleðina hér áður, nánari upplýsingar um grillið er að finna hér.
Dagskrána í heild að finna á myndinni með þessari frétt.
Höldum gleðinni hátt á loft, góða skemmtun.
Nýjast
-
Þakklæti er varla nægilega sterkt lýsingarorð
- 22.11
„Ég þurfti að gera hlé á máli mínu því tárin bara runnu niður kinnarnar,“ segir Marta Kristín Rósudóttir verkefnastjóri hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis. Dekurdagar afhentu félaginu alls 6, 7 milljónir króna og hefur upphæðin aldrei verið hærri en nú. Frá árinu 2012 hafa Dekurdagar safnað 37.850.000 kr. fyrir Krabbameinsfélag Akureyrar -
Fjórtándi jólasveinninn hjá Freyvangsleikhúsinu
- 22.11
Fjórtándi jólasveinninn er frumsamið jólaverk eftir Ásgeir Ólafsson Lie sem segir sögu af hinum hefðbundnu jólasveinunum 13 sem og Grýlu, Leppalúða og jólakettinum. Nema í þessu leikverki eru jólasveinarnir ekki bara þrettán heldur er þarna sá fjórtándi sem enginn átti von á. Leikritið verður frumsýnt hjá Freyvangsleikhúsinu á laugardag, 23. nóvember og verður sýnt á aðventunni. -
Dásamlegt og gefandi að starfa í kvenfélagi
- 22.11
„Það er dásamlegt að starfa í kvenfélagi. Þetta er yndislegur félagsskapur, gefandi á allan hátt. Við skemmtum okkur vel, látum gott af okkur leiða en vinnum okkar verk yfirleitt í hljóði og erum ekki að auglýsa það sérstaklega þó við gerum góðverk,“ segir Auður Thorberg formaður Kvenfélagsins Hjálparinnar í Eyjafjarðarsveit. -
Mikil ásókn í íbúðir á vegum Bjargs á Húsavík
- 21.11
Óhætt er að segja að mikill áhugi sé á íbúðum sem Bjarg íbúðafélag er að byggja á Húsavík í samstarfi við Norðurþing, en þetta kemur fram á heimasíðu Framsýnar í dag. -
Litlu jólin á sjó!
- 21.11
Áralöng hefð er fyrir því að áhafnir fiskiskipa Samherja haldi litlu jól í aðdraganda jólanna. Kokkarnir töfra þá fram hverja kræsinguna af annarri. Litlu jól áhafna Kaldbaks og Snæfells voru haldin hátíðleg á dögunum. -
Boðað verkfall lækna mun hafa áhrif á þjónustu SAk.
- 21.11
Félagsmenn í Læknafélagi Íslands hafa samþykkt verkfallsboðun og hafi ekki samist skellur boðað verkfall lækna á eftir nokkra daga eða um miðnætti aðfaranótt mánudagsins 25. nóvember n.k. -
Hvítasunnukirkjan styrkir Hollvinasamtök
- 21.11
Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri fengu afhentan rausnarlegan peningastyrk frá Hvítasunnusöfnuðinum, alls 800 þúsund krónur nýverið. -
Ætla Íslendingar að standa vörð um orkuauðlindir sínar?
- 21.11
Einhver myndi segja að sá bóndi er seldi frá sér allar bestu mjólkurkýrnar væri vitlaus maður. Utan ef tilgangurinn væri að pakka saman, hætta rekstri og selja hæstbjóðanda. -
Norðurorka lækkar samfélagsstyrki á næsta ári
- 21.11
Stjórn Norðurorku hefur samþykkt að lækka styrki en fyrirtækið hefur undanfarin ár veitt styrki til margvíslegra verkefna og málefna.