Fjölskylduklefi í sundlaug Húsavíkur
Nú hefur loksins verið opnaður hjá okkur fjölskylduklefinn í Sundlaug Húsavíkur en um er að ræða einkaklefa fyrir fólk sem til dæmis þarf aðstoð annars aðila og fyrir þá sem vilja vera einir og treysta sér ekki til að deila klefa með öðrum.
Klefinn er ekki orðinn alveg 100% klár en nothæfur og hvetjum við notendur til að hafa samband við starfsfólk sundlaugarinnar ef þau hafa einhverjar ábendingar um það sem betur má fara.
Frá þessu segir á heimasíðu Norðurþings
Nýjast
-
Ég sækist eftir 1 sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins
- 17.10
Ég hef ákveðið að sækjast eftir 1.sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í Alþingiskosningum 30. nóvember næstkomandi. Frá því að ég hlaut trúnað ykkar og kjör á Alþingi 2016 hef ég af af öllum kröftum verið að vinna að hag kjördæmis okkar og þjóðarinnar allrar. Áherslur mínar hafa allan þann tíma verið á þau grundvallarmál sem skipta mestu fyrir verðmætasköpun í landinu: Atvinnumál, lífskjör fólks og búsetuskilyrði í Norðausturkjördæmi, samgöngumál, heilbrigðismál, raforkumál, málefni ferðaþjónustunnar, landbúnaðarmál, sjávarútvegsmál, byggðamál, menntun og menningarmál og svo mætti lengi telja. Jafnframt hef ég haft trúnað Alþingis til að vinna að efnahagsmálum, ríkisfjármálum og utanríkismálum. Ég hef verið virkur í umræðum í öryggis og varnarmálum og leitt þátttöku íslands á erlendri grund í þeim efnum. Samgöngumál hafa verið sérstakt baráttumál enda má segja að ekkert skipti velferð fólks á landsbyggðinni meira máli en góðar og öruggar samgöngur. Reynsla og þekking er verðmæt í störfum á Alþingi. Með þátttöku minni og tengslum við atvinnulíf, við sveitarstjórnarmál og áralöng reynsla af þingmennsku hef ég öðlast skarpa sýn á þau málefni sem þurfa sérstaka athygli á vettvangi stjórnmála á næstu áru -
Líneik Anna hættir á þingi
- 17.10
Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi Alþingiskosningum. -
Öruggara Norðurland eystra
- 17.10
Miðvikudaginn 16. október formfestum við svæðisbundið samráð um varnir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Norðurlandi eystra undir merkjum Öruggara Norðurland eystra. -
Um 65 tilkynningar um tjón vegna rafmagnstruflana á Akureyri
- 17.10
„Tjónstilkynningum heldur áfram að fjölga en þær eru nú orðnar rétt í kringum sextíu hér á Akureyri,“ segir Gunnur Ýr Stefánsdóttir skrifstofustjóri á skrifstofu forstjóra Norðurorku en fyrirtækið tekur við tilkynningum um tjón sem urðu á Akureyri vegna truflana í flutningskerfi Landsnets 2. október síðastliðinn. Rarik heldur utan um tjónstilkynningar utan Akureyrar. -
Hvernig velja framboðin á lista í Norðausturkjördæmi?
- 17.10
Flest framboðin í Norðausturkjördæmi munu stilla upp á lista sína. Undantekningin er Sjálfstæðisflokkurinn sem velur fimm efstu á kjördæmisþingi og Píratar sem halda prófkjör. Vinsælt er að koma saman í Mývatnssveit til að velja listana. -
Stuðmenn og Gærurnar í Samkomuhúsinu á Húsavík
- 17.10
Píramus & Þispa frumsýnir söngleikinn Með allt á hreinu -
Húsnæði fundið fyrir Kvennaathvarfið- Mikill léttir
- 16.10
„Þetta er mikill léttir og mikil gleði að málið er nú í höfn,“ segir Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins en hún skrifaði fyrr í dag undir samning um leigu á húsnæði á Akureyri. Samningurinn er til þriggja ára. -
Sjálfstæðismenn velja á framboðslista á tvöföldu kjördæmisþingi
- 16.10
Ljóst er að kosið verður á milli minnst tveggja einstaklinga í oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Valið verður á tvöföldu kjördæmisþingi á sunnudag. -
Jens Garðar Helgason býður sig fram sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi
- 16.10
Jens Garðar Helgason hefur tilkynnt framboð sitt til oddvita Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í komandi þingkosningum. Jens Garðar, hefur langa reynslu af störfum í atvinnulífi og sveitarstjórn, segir framboðið byggt á þörf fyrir sterka forystu sem gæti betur hagsmuna Norðausturkjördæmis. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á málefnum samfélagsins og trúi því að með sameiginlegu átaki getum við tryggt áframhaldandi framfarir og velferð í kjördæmi sem og landinu í heild,“ segir Jens Garðar. „Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið sterkt hreyfiafl íslenskra stjórnmála og þjóðlífs. Ég vill leggja mitt af mörkum í baráttu fyrir framgangi sjálfstæðisstefnunnar," segir hann.