Fiskvinnslubúnaður í saltfiskvinnslu á Nýfundnalandi frá Slippnum DNG

DNG Snyrtilína tilbúin fyrir Kanadamarkað   Myndir  slippurinndng.is
DNG Snyrtilína tilbúin fyrir Kanadamarkað Myndir slippurinndng.is

Slippurinn DNG er í óða önn að ljúka framleiðslu á ýmsum búnaði í saltfiskvinnslu Labrador Fishermen's  Union á Nýfundnalandi. Þessi búnaður inniheldur meðal annars snyrtilínu, snigil, afsöltunarkerfi og forritun á allri vinnslunni.

„Við höfum heimsótt og kortlagt vinnsluna tvisvar á síðustu mánuðum. Slippurinn DNG framleiðir fjölbreytt úrval af tækjabúnaði fyrir fiskvinnslur. Við bjóðum einnig lausnir og þekkingu í forritun og hugbúnaði til viðskiptavinarins,“ segir Orri Fannar verkefnastjóri hjá Slippnum DNG. „Við sjáum um að forrita allan stýringar fyrir vinnslulínuna í verksmiðjunni, ásamt því að framleiðsluhugbúnaðurinn PROMAS frá Slippnum DNG er notaður til að halda um öll framleiðslugögn.“

Orri Fannar verkefnastjóri hjá Slippnum DNG

 Gert er ráð fyrir að uppsetningu á verksmiðjunni sé lokið seinni hluta júní. Vertíðin byrjar svo um miðjan júlí. „Í gegnum árin hefur Slippurinn DNG hannað og framleitt vinnsludekk fyrir skipaiðnaðinn og gríðarleg reynsla er innan fyrirtækisins á því sviði. Undanfarin misseri höfum við verið að færa út kvíarnar með hönnun og framleiðslu á heildarlausnum fyrir landvinnslur og er að opnast nýr markaður fyrir okkur með ótal tækifærum.“

DNG Kerakerfi frá Slippnum DNG

Það var www.slippurinndng.is sem fyrst sagði frá


Athugasemdir

Nýjast