EFLA styrkir Eflingu

Hjalti Már Bjarnason, svæðisstjóri EFLU á Norðurlandi, og Gunnhildur Hinriksdóttir, gjaldkeri Ungmen…
Hjalti Már Bjarnason, svæðisstjóri EFLU á Norðurlandi, og Gunnhildur Hinriksdóttir, gjaldkeri Ungmennafélagsins Eflingar. Mynd/EFLA

Samfélagssjóður EFLU veitti fyrr í þessum mánuði fjárstyrki til sjö samfélagsverkefna. Meðal styrkhafa var Ungmennafélagið Efling í Reykjadal S-Þingeyjarsýslu. Greint er frá þessu á vef EFLU

„Styrkinn munum við nota til þess að uppfæra æfinga- og keppnisáhöld í frjálsíþróttum en áhöldin nýtast iðkendum frá fleiri félögum á HSÞ-svæðinu sem hafa í gegnum tíðina komið reglulega á æfingar í Lauga,” segir Gunnhildur Hinriksdóttir, gjaldkeri Ungmennafélagsins Eflingar, sem fékk styrk úr Samfélagssjóði EFLU.

Hjá Eflingu iðka um 30 krakkar frjálsar íþróttir allt árið og auk þess eru enn fleiri iðkendur annarra félaga sem nýta sér aðstöðu félagsins. „Iðkendur frá Mývetningi sem hafa komið á völlinn einu sinni í viku í sumar, þau eru eitthvað um 10 til viðbótar. Við vorum svo með eina sameiginlega æfingu í júní fyrir allt HSÞ-svæðið og þá bættust við krakkar frá Kópaskeri og Öxarfirði,” segir Gunnhildur.

Félagið heldur einnig mót á svæðinu en helgina 13.-14. júlí fór fram Meistaramót Íslands 11-14 ára í frjálsíþróttum. „Við höfum árlega haldið þokkalega stórt mót, Sumarleika HSÞ, með allt að 150 keppendum sem koma víðs vegar af landinu,” bætir hún við.

Efling frjálsar

120 ára gamalt félag

Ungmennafélagið Efling fagnaði 120 ára afmæli á árinu, en það var stofnað 24. apríl 1904. Langflestir iðkendur félagsins eru búsettir á skólasvæði Þingeyjarskóla, þ.e.a.s í Aðaldal í Reykjadal, Aðaldal og Kinn.

Gunnhildur segir að Ungmennafélagið Efling sé út á við líklega ekki þekkt fyrir íþróttalegan árangur. Hins vegar hefur leiklistarstarf félagsins verið blómlegt um áratugaskeið en félagið hefur sett upp fjölda leiksýninga. „Leikdeildin setti til að mynda upp leikverkið Landsmótið árið 2004 sem þá var valið áhugaverðasta áhugamannaleiksýningin og sýndi leikhópurinn verkið í Þjóðleikhúsinu við góðar undirtektir,” segir Gunnhildur að lokum.

Umfjöllun um sýninguna má finna hér.


Athugasemdir

Nýjast